Vilja ógilda rétt á vörumerkinu Iceland Jón Hákon Halldórsson skrifar 21. september 2016 07:00 Verslun Iceland á Íslandi. Vísir/Pjetur
Til greina kemur að höfða mál til þess að krefjast ógildingar á skráningu bresku matvöruverslanakeðjunnar Iceland á vörumerkinu Iceland í ríkjum innan Evrópusambandsins. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins skoða Íslandsstofa, utanríkisráðuneytið og Samtök atvinnulífsins möguleikann á að leggja fram slíka kröfu í samstarfi við Árnason faktor. Síðastnefndi aðilinn sérhæfir sig í ráðgjöf vegna vörumerkjaskráninga og hugverkaréttinda. Nokkur ár eru liðin frá því að fyrst var farið að huga að málinu en þá dagaði það uppi. Nú er aftur farið að huga að málinu og nú er ráðgert að aðilar muni funda hinn 28. september næstkomandi til að taka ákvarðanir um næstu skref. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins hefur Íslandsstofa skráð vörumerkið Inspired by Iceland víða erlendis. Almennt hefur það gengið vel. Þó hafa borist andmæli þegar verið er að skrá vörumerkið fyrir vöruflokka sem skarast við þá vöruflokka sem vörumerki verslanakeðjunnar Iceland er skráð fyrir. Rúm ellefu ár eru liðin frá því að Steingrímur J. Sigfússon, þáverandi formaður VG, gerði athugasemdir við það á Alþingi að fyrirtækið Iceland gerði nafn Íslands að vörumerki sínu. Þá hafði Iceland sent inn umsókn um skráningu vörumerkisins hjá bresku einkaleyfastofunni og þeirri evrópsku. Steingrímur spurði Geir H. Haarde, þá starfandi utanríkisráðherra, hvernig hann ætlaði að bregðast við þessu.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Í áfalli yfir dýrari dekkjum og Hlöllabát Neytendur 96 sagt upp í hópuppsögnum í júní Viðskipti innlent Stærsti Hiab krani í heimi á sumarsýningu Veltis Samstarf Helmingaði kostnaðinn við matarinnkaup Neytendur Ómar fær fyrir ferðina Neytendur Sjálfbærniskólinn: Mörg fyrirtæki að gera geggjað góða hluti án þess að átta sig á því Atvinnulíf Verðskrá Lufthansa hækkar vegna nýs umhverfisgjalds Neytendur Betra en ekki að viðurkenna mistökin Atvinnulíf Selja fyrsta bjórinn ekki fyrr en í ágúst Viðskipti innlent Tekur við fjármálunum hjá Securitas Viðskipti innlent Fleiri fréttir 96 sagt upp í hópuppsögnum í júní Tekur við fjármálunum hjá Securitas Selja fyrsta bjórinn ekki fyrr en í ágúst Karen Ýr ráðin gæðastjóri Biðin eftir vaxtalækkun gæti lengst enn frekar Minna nú á skoðun ökutækja á Ísland.is Alvotech reiknar með tíföldum tekjum Útflutningsverðmæti eldislaxins meiri en loðnunnar Opna baðstað í Kerlingarfjöllum um helgina Svekkjandi uppgjör og aðstoðarforstjórinn látinn róa Arion banki greiði Seðlabankanum 585 milljónir Rannveig hættir í Seðlabankanum Íslensk hugbúnaðarlausn greinir kolefnisspor innkaupa fyrirtækja Flýta ekki vaxtaákvörðun þrátt fyrir áköll Flestar íbúðir seljist undir eða á auglýstu verði Ýmir Örn fer frá N1 Verðbólga nú 5,8 prósent Icelandair kaupir Airbus flughermi Í maí voru 5800 atvinnulausir Snúa vörn í sókn og kynna eldfjallaleið fyrir ferðamenn Andri Þór Viðskiptafræðingur ársins 2024 Hafa ekki nokkrar áhyggjur af fækkun ferða Seldu til rannsóknarrisa: „Maður þarf að vera draumóramaður“ Gugga í Gatsby kveður: „Margar konur búnar að skæla hérna inni“ Wok on-veldið falt Unnur vaktar fjármálin í Danmörku Húrra Reykjavík opnar á Keflavíkurflugvelli Bein útsending: Kynna yfirtökutilboðið Gefa út kynjað skuldabréf Sóttu rúman milljarð í fjármögnun Sjá meira