Innlent

Vísindavefurinn opnar Evrópuvef

Þorsteinn Vilhjálmsson, aðalritstjóri Evrópuvefsins.
Þorsteinn Vilhjálmsson, aðalritstjóri Evrópuvefsins.
Alþingi hefur gert þjónustusamning við Vísindavef Háskóla Íslands um samningu og rekstur Evrópuvefs. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, opnaði vefinn í dag á Háskólatorgi og mun Evrópuvefurinn starfa í nánum tengslum við Vísindavefinn.

Tilgangur vefsins verður að veita hlutlægar og málefnalegar upplýsingar um hvað það sem fólk kynni að vilja vita og inna um varðandi Evrópumál og Evrópusambandið. Vefurinn verður með svipuðu sniði og Vísindavefurinn.

Aðspurður hvernig vefurinn hyggðist gæta að hlutleysi í svörum sínum sagði Þorsteinn Vilhjálmsson, aðalritstjóri vefsins að starfsmenn vefsins hefðu verið vandlega valdir úr hópi 108 umsækjenda. Þær væru báðar einstaklega vel að sér um Evrópumál en væru hvorki harðir stuðningsmenn né andstæðingar evrópuaðildar. Auk þess verði opið fyrir málefnalegar athugasemdir og leiðréttingar lesenda vefsins.

Í fréttatilkynningu vefsins segir ennfremur:

Í umfjöllun um Evrópusambandið verður aðildarumsókn Íslands að sjálfsögðu höfð í huga en einnig verður reynt að veita almennar upplýsingar enda er Evrópusambandið hluti af umhverfi okkar hvort sem Ísland gengur í það eða ekki. Í fyrstu verður lögð nokkur áhersla á sögu Evrópu og ESB enda má þar finna skýringar á ýmsum atriðum í umræðunni.

Stefnt er að því að svör á Evrópuvefnum verði vönduð, einföld og skýr almenningi og án rökvillna. Sérhæfð fræðiorð eru útskýrð, yfirleitt í sérstakri skrá, og samsvarandi orð á ensku sýnd þannig að lesandi geti aflað sér meiri upplýsinga á því máli. Málefnalegar athugasemdir undir fullu nafni verða leyfðar við svör.

Aðalritstjóri Evrópuvefsins er Þorsteinn Vilhjálmsson, prófessor emeritus í vísindasögu og eðlisfræði, ritstjóri Vísindavefsins 2000-2010. Aðrir starfsmenn eru Vilborg Ása Guðjónsdóttir, MA í alþjóðasamskiptum, og Þórhildur Hagalín, MA í Evrópufræðum. Í ritstjórn eru auk ritstjóra þau Erna Bjarnadóttir hagfræðingur, Margrét Einarsdóttir lögfræðingur og Sverrir Jakobsson sagnfræðingur. Framkvæmdastjóri Evrópuvefsins er Jón Gunnar Þorsteinsson, ritstjóri Vísindavefsins. Vefstjóri Evrópuvefsins er Guðmundur Daði Haraldsson.

Á vefsetri Evrópuvefsins er nú þegar talsvert efni til að skoða og yfirleitt verður bætt við nokkrum svörum á hverjum virkum degi. Veffangið er https://evropuvefur.is/.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×