Innlent

Vistfræðingar fagna tillögum um náttúruverndarlög

Spánarsnigill veldur miklum skaða í nágrannalöndum okkar og er nú kominn hingað til frambúðar.
Spánarsnigill veldur miklum skaða í nágrannalöndum okkar og er nú kominn hingað til frambúðar.

„Stjórn Vistfræðifélags Íslands fagnar meginatriðum tillagna að breytingum á náttúruverndarlögum. Hún telur það vera skref í átt til samræmingar íslenskrar löggjafar við lagasetningar vestrænna ríkja og við alþjóðasamninga og samvinnuverkefna sem Ísland er aðili að."

Þetta segir Ingibjörg Svala Jónsdóttir, formaður Vistfræðifélags Íslands, innt eftir umsögn félagsins um ofangreindar breytingar, sem send hefur verið umhverfisráðuneytinu.

Ingibjörg segir stjórnina telja sérstaklega mikilvægt að endurskoða núverandi lagagrein náttúruverndarlaganna sem lýtur að innflutningi lífvera í ljósi loftslagsbreytinga.

„Hingað til hefur norðurslóðum verið hlíft að mestu við vandamálum tengdum ágengum lífverum vegna einangrunar og óhagstæðs loftslags. Með bættum samgöngum eykst hættan á að ágengar tegundir berist hingað og að með hlýnandi loftslagi breytist hegðun tegunda þannig að framandi tegundir hér á landi gætu gerst ágengar þótt þær hafi ekki áður sýnt merki um ágengni," útskýrir Ingibjörg. „Í því sambandi þarf sérstaklega að huga að tegundum sem eru ágengar í nágrannalöndum okkar eða annars staðar þar sem aðstæðum svipar til aðstæðna hér á landi. Þá er mikilvægt að huga vel að skilgreiningum á bæði framandi lífverum og ágengum lífverum til að tryggja skýra löggjöf."

Ingibjörg segir að hin hörðu viðbrögð við lagafrumvarpinu frá tilteknum félagasamtökum séu vel skiljanleg því frumvarpið muni óhjákvæmilega takmarka frelsi til innflutnings lífvera.

„Þannig er með flestar lagasetningar sem takmarka frelsi einstaklinganna að þær eru settar með langtímahagsmuni samfélagsins í huga, með það fyrir augum að koma í veg fyrir samfélagslegt tjón, hvort sem það er af efnahagslegum, umhverfislegum eða heilsufarslegum toga."

Komið hefur fram í umræðunni að ekki ríki sátt um að ágengar lífverur séu vandamál. Ingibjörg segir það ekki breyta því að á sama hátt og almenn sátt ríki um að loftslagsbreytingar af manna völdum sé fyrirbæri sem taka verði á með viðeigandi samningum og lagasetningum ríki almenn sátt í vísindasamfélaginu um að ágengar lífverur séu umhverfis- og samfélagsógn sem verði að mæta á sama hátt. Munurinn sé einungis sá að í síðara tilfellinu sé umræðan rétt að hefjast hér á landi og sé því mun skemmra á veg komin en varðandi loftslagsbreytingar.jss@frettabladid.is





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×