Lífið

Völva 2013: Fjölgun hjá fræga fólkinu

Bæði Bubbi Morthens og Unnur Birna fjölga sér á árinu. Linda stækkar heilsuveldi sitt, Fjölnir og Bryndís ánægð í faðmi fjölskyldunnar, Ásdís Rán verður ástfangin með haustkomu og Rikka heldur áfram að elda ljúffenga rétti fyrir landann.

Bubbi Morthens blómstrar með konunni


Bubbi Morthens og eiginkona hans Hrafnhildur Hafsteinsdóttir eru sæl með sig og sína. Það eru góðir tímar hjá þeim og nýtt barn, drengur, á árinu. Bubbi verður störfum hlaðinn við að semja og koma sinni tónlist á framfæri. Það er mikil og góð orka í kringum hann og þau bæði.

Unnur Birna Vilhjálmsdóttir og unnusti hennar Pétur Rúnar Heimisson.
Unnur Birna eignast dreng

Unnur Birna Vilhjálmsdóttir stofnar fyrirtæki út úr öðru fyrirtæki. Það gengur vel. Ég sé hönnuði vinna mikið fyrir hana, þetta verður einhvers konar umboðsfyrirtæki sýnist mér. Hún mun eignast dreng á árinu og blómstra sem aldrei fyrr.

Ásdís Rán finnur ástina á ný með komu haustsins.
Ásdís Rán Gunnarsdóttir verður ekki mikið í sviðsljósinu á árinu. Hún er ekki ánægð með lífið fyrri part ársins 2013 en það breytist með haustinu.

Bryndís Ásmundsdóttir og Fjölnir Þorgeirsson njóta foreldrahlutverksins og litli drengurinn þeirra dafnar vel. Það eru góðir straumar kringum þau á árinu.

Linda verður glæsilegri með hverju árinu. Völvan sér hana í viðskiptum á árinu.
Linda P færir gjaldeyri til landsins Linda Pétursdóttir heldur áfram með Baðhúsið og bætir við sig í nýju fyrirtæki. Þar verður hún með heilsuátak fyrir erlenda ferðamenn, ekkert ósvipað og Jónína Benediktsdóttir en þetta verður vandaðra, gerir stormandi lukku og færir mikinn gjaldeyri til landsins.



Rikka
, Friðrika Hjördís Geirsdóttir, kemur með eitthvað nýtt og spennandi matarkyns á árinu. Hún verður einnig áberandi í skemmtanalífinu.

Völva 2013: Dorrit í aðalhlutverki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×