Viðskipti innlent

Vopnafjörður seldi fyrir hálfan milljarð

Magnús Halldórsson skrifar
Vopnarfjarðarhreppur hefur selt hlut sinn í útgerðarfyrirtækinu HB Granda fyrir tæplega hálfan milljarð króna. Sveitarstjóri hreppsins segir söluna styrkja fjárhag sveitarfélagsins verulega.

Sala sveitarfélagsins á hlutnum gekk í gegn sl. föstudag, en samanlagður hlutur hreppsins og Skiphólma ehf., félags í eigu hans, nam um 2,5 prósentum af heildarhlutafé. Allt það hlutafé hefur nú verið selt á tæplega 480 milljónir króna, að því er Þorsteinn Steinsson, sveitarstjóri hreppsins, staðfesti við fréttastofu í dag.

Samkvæmt fundargerð Vopnafjarðarhrepps frá 29. nóvember sl. var það verðbréfafyrirtækið Virðing sem nálgaðist hreppinn með sölu á bréfunum í huga. Viðskiptin voru síðan samþykkt í kjölfarið. Ekki liggja enn fyrir upplýsingar um hver keypti bréfin en það mun vafalítið skýrast í vikunni þegar nýr listi yfir tuttugu stærstu hluthafa verður birtur í Kauphöll Íslands.

Sveitarfélagið selur hlut sinn á genginu 12,1 en samkvæmt ársreikningi Vopnafjarðarhrepps var hluturinn bókfærður á genginu 6. Salan mun styrkja fjárhag sveitarfélagsins verulega en heildar vaxtaberandi skuldir þess í lok síðasta árs, samkvæmt ársreikningi, voru um 940 milljónir króna.

Þó sveitarfélagið selji eignarhlut sinn í Granda þá hagnast það áfram á starfsemi félagsins á Vopnafirði, sem hefur gengið vel undanfarin misseri, ekki síst vinnslan á Makríl.

Arion banki á þriðjungshlut í Granda eftir að Ólafur Ólafsson missti hlut sinn til bankans. Sé mið tekið af þessum viðskiptum er virði hlutarins um 6,6 milljarðar króna og heildarvirði félagsins um 19,8 milljarðar króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×