Innlent

Yfir 400 milljóna króna tap af rekstri Hörpu í ár

Tekjur af ráðstefnuhaldi í Hörpu eru langt undir áætlunum, og virðist sá hluti rekstrarins fara hægt af stað.
Tekjur af ráðstefnuhaldi í Hörpu eru langt undir áætlunum, og virðist sá hluti rekstrarins fara hægt af stað. Fréttablaðið/Vilhelm
Hallarekstur á Hörpu er alvarlegur og ekki útilokað að tapið lendi á skattgreiðendum segir menntamálaráðherra. Stór hluti tapsins er til kominn vegna vanáætlaðra fasteignagjalda. Ráðstefnuhaldið fer hægt í gang.

Um 407 milljóna króna tap verður af rekstri tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu á þessu ári miðað við óbreyttar forsendur. Þetta kemur fram í niðurstöðum úttektar sem ráðgjafafyrirtækið KPMG gerði á rekstri og skipulagi Hörpu fyrir eigendurna; ríkið og Reykjavíkurborg.

Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra segir hallareksturinn alvarlegan. Hún útilokar ekki að tapið lendi að hluta á skattgreiðendum, þó reynt verði til þrautar að láta reksturinn bera sig.

Katrín segir hallarekstur Hörpu skýrast af því að áætlanir hafi ekki gengið eftir. Um helmingurinn af tapi ársins er vegna vanáætlunar á fasteignagjöldum, en aðrir þættir vega einnig þungt, segir Katrín. Til dæmis sé rekstur á húsinu hærri en áætlað var, og tekjur af veitingasölu og bílastæðahúsi undir væntingum.

Tekjur af tónlistarflutningi og menningarstarfsemi í húsinu hefur verið samkvæmt áætlun á árinu. Alls hafa 250 þúsund gestir sótt 367 tónleika og menningarviðburði í húsinu. Tekjur af ráðstefnuhaldi eru hins vegar langt undir áætlun.

„Ég held að það sé ekki ólíklegt að við getum séð fram á meiri tekjur af ráðstefnuhaldi í framtíðinni. Sá bransi virðist vera skipulagður mjög langt fram í tímann, núna eru að koma inn bókanir fyrir árin 2016 og 2017. Svo við getum átt von á því að það gangi betur,“ segir Katrín.

Halldór Guðmundsson tók við starfi forstjóra Hörpu í byrjun ágúst. Hans fyrsta verkefni verður að vinna fimm ára rekstraráætlun fyrir húsið, og þar með leita leiða til að spara í rekstri og auka tekjur, segir Katrín. Reiknað er með að ný rekstraráætlun liggi fyrir í haust. Á sama tíma stendur til að kynna nýja eigendastefnu ríkis og Reykjavíkurborgar þar sem sett verða fram markmið eigendanna með rekstri Hörpu.

Einnig stendur til að einfalda mjög fyrirkomulag rekstursins. Þegar einkaaðilar hófu undirbúning að byggingu og rekstri hússins stofnuðu þeir átta félög til að halda utan um rekstur mismunandi eininga. Nú stendur til að færa reksturinn í eitt félag í eigu ríkisins og Reykjavíkurborgar.

Katrín segir að með því muni nást ákveðin hagræðing, en mestu muni um aukið gagnsæi og betri stjórnarhætti eftir að reksturinn verður kominn í eitt félag.

brjann@frettabladid.is



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×