Innlent

Yfirheyrslum lokið

„Þetta er metið í hverju máli fyrir sig. Eins og þetta mál liggur fyrir er ekki nauðsynlegt að óska eftir gæsluvarðhaldi,“ segir Ólafur Þór.
„Þetta er metið í hverju máli fyrir sig. Eins og þetta mál liggur fyrir er ekki nauðsynlegt að óska eftir gæsluvarðhaldi,“ segir Ólafur Þór. Mynd/Anton
Yfirheyrslum vegna rannsóknar embættis sérstaks saksóknara á málefnum VÍS er lokið í bili. Ekki verður farið fram á fjórmenningarnir sem handteknir voru í dag verði úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Þetta staðfesti Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, í samtali við fréttastofu. Yfirheyrslum lauk um áttaleytið í kvöld.

Fjórir voru handteknir þegar embættið framkvæmdi húsleit í höfuðstöðvum VÍS, Vátryggingafélags Íslands, síðdegis í dag. Fjármálaeftirlitið vísaði málum tengdum Vís til sérstaks saksóknara á dögunum. Mennirnir sem umræðir eru: Lýður Guðmundsson, sem var aðaleigandi Exista, Erlendur Hjaltason sem var forstjóri Exista, Bjarni Brynjólfsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri eigin viðskipta Exista, og Guðmundur Örn Gunnarsson sem hefur verið forstjóri VÍS. Í fréttum Vísis í dag og kvöldfréttum Stöðvar 2 var ranghermt að Sigurður Valtýsson, fyrrverandi forstjóri Exista, væri einn hinna handteknu. Fréttastofa Stöðvar 2 og Vísis biðst velvirðingar á því. Sigurður er staddur erlendis.

Grunur leikur um brot á lögum um vátryggingarstarfsemi og umboðssvik vegna umdeildra lánveitinga. Ólafur Þór segir yfirheyrslur haldi áfram á morgun en þó ekki yfir öllum fjórum sem handteknir voru í dag.


Tengdar fréttir

Guðmundur og Erlendur látnir lausir

Guðmundur Örn Gunnarsson, fyrrverandi forstjóri VÍS, og Erlendur Hjaltason, fyrrverandi forstjóri Existu, hafa verið látnir lausir úr haldi lögreglu. Þeir voru færðir til yfirheyrslu hjá sérstökum saksóknara í dag vegna rannsóknar embættisins á lánveitingum VÍS á árunum 2007-2009.

Sérstakur saksóknari gerði húsleit í VÍS

Sérstakur saksóknara hefur gert húsleit í höfðuðstöðvum VÍS og Exista. Húsleitin var gerð í kjölfar rannsóknar Fjármálaeftirlitsins á tilteknum lánveitingum út úr félaginu á árunum 2007 - 2009. Starfsfólk félagsins vinnur með embættinu að gagnaöfluninni. Skammt er

Fjórir menn handteknir í tengslum við húsleit

Fjórir menn voru handteknir í tengslum við rannsókn sérstaks saksóknara á lánveitingum VÍS í dag. Samkvæmt heimildum fréttastofu eru þetta Lýður Guðmundsson, sem var aðaleigandi Exista, Erlendur Hjaltason, sem var forstjóri Existu, og Guðmundur Örn Gunnarsson sem hefur verið forstjóri VÍS.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×