Evrópumeistaratitill í afmælisgjöf Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 19. maí 2013 17:51 Leikmenn Löwen fagna í Nantes í dag. Nordicphotos/Getty
Alexander Petersson, Stefán Rafn Sigurmannsson og félagar í Rhein-Neckar Löwen urðu í dag Evrópumeistarar í handknattleik eftir 26-24 sigur á Nantes í úrslitaleik EHF-bikarsins í Frakklandi. Þýska liðið hafði undirtökin stærstan hluta leiksins og leiddi í hálfleik 16-12. Alexander skoraði tvö mörk fyrir Ljónin frá Mannheim og Stefán Rafn Sigurmannsson eitt. Uwe Gensheimer, sem er nýkominn aftur á ferðina eftir erfið meiðsli, átti stórleik fyrir Löwen og skoraði tíu mörk. Meiðsli Gensheimer urðu einmitt til þess að Stefán Rafn var fenginn til Löwen þar sem hann hefur slegið í gegn. Stefán Rafn fagnaði 23 ára afmæli sínu í dag og fékk því bestu mögulegu afmælisgjöfina frá liðsfélögum sínum. Gunnar Steinn Jónsson skoraði tvö mörk fyrir Nantes sem stóð fyrir sínu en þýska liðið reyndist of stór biti þegar uppi var staðið. Þetta er fyrsti Evróputitill Rhein-Neckar Löwen en liðinu stýrir Guðmundur Þórður Guðmundsson. „Við vissum að Nantes yrði erfiður andstæðingur enda vel studdir á heimavelli. Við spiluðum hins vegar vel og verðskulduðum sigurinn," sagði Uwe Gensheimer í leikslok. Hann sagði stundina afar sæta en biðin eftir Evróputitli hjá Rhein-Neckar Löwen hefur verið löng og ströng. Danska liðið Tvis Holstebro tryggði sér fyrr í dag bronsið með 28-27 á Göppingen.
Handbolti Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Góður sigur Stjörnunnar á meisturunum Fótbolti Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Fleiri fréttir Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Sjá meira