Harmageddon

Ofbeldið bein afleiðing af þáttum eins og 70 mínútum og Jackass

Máni Pétursson skrifar
Auddi Blö og Sveppi Krull voru með allskonar djöfulgang í 70 mínútum.
Auddi Blö og Sveppi Krull voru með allskonar djöfulgang í 70 mínútum.
Myglaður kjúklingur, fiskikör, hundaólar og það að girða niðrum náungann eru allt atriði sem gerast í skjóli busavígslunnar.

Þessu heldur Kristinn Þorsteinsson skólameistari Fjölbrautaskólans í Garðabæ fram. En stjórn skólans hefur tekið þá ákvöðrun að banna allar busavígslur á vegum skólans.

„Ég vona að viðbrögðin út í samfélaginu verði þannig að fólk verði sammála um að við viljum ekki hafa ofbeldi sem skemmtiatriði. Auðvitað getum við litið á hvaðan þetta kemur. Þetta virðist vera nokkuð bein afleiðing af þáttum eins og 70 mínútum og myndum eins og Jackass.“



Sagði Kristinn Þorsteinsson Skólameistari í viðtali við Harmageddon í morgun en hægt er að hlusta á viðtalið hér að ofan.








×