Íslenski boltinn

Pablo Punyed til Stjörnunnar

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Brynjar Björn Gunnarsson og Punyed eftir undirskriftina í kvöld.
Brynjar Björn Gunnarsson og Punyed eftir undirskriftina í kvöld. Mynd/Heimasíða Stjörnunnar
Stjarnan greindi frá því í kvöld að félagið hefði samið við Pablo Punyed til næstu tveggja ára.

Punyed er 24 ára gamall knattspyrnumaður frá El Salvador og hefur leikið með Fylki og Fjölni síðustu ár. Hann kom við sögu í ellefu leikjum með Fylki í Pepsi-deildinni síðastliðið sumar en missti af stórum hluta tímabilsins vegna meiðsla.

Hann æfði með liði FH á dögunum en hefur nú ákveðið að semja við Stjörnuna.

„Pablo mun án efa styrkja liðið mikið á komandi leiktíð en hann er kraftmikill leikmaður sem getur spilað bæði á miðjunni og úti á vængnum,“ segir í frétt á heimasíðu Stjörnunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×