Íslenski boltinn

Chuck verður með Þór í sumar

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Chuck skoraði tíu mörk síðasta sumar.
Chuck skoraði tíu mörk síðasta sumar. Vísir/Eva Björk
Þórsarar hafa fengið mikinn liðstyrk fyrir tímabilið í Pepsi-deild karla í knattspyrnu en framherjinn öflugi, ChuckwudiChijindu, hefur samið við liðið til eins árs og leikur með því í sumar.

Þetta kemur fram á heimasíðu liðsins en Chuck, eins og hann er kallaður, fór á kostum með Þór í fyrra og skoraði tíu mörk í 18 deildarleikjum. Hann var ein helsta ástæða þess að liðið hélt sér í deildinni.

Magnús Eggertsson í leikmannaráði Þórs segir Chuck væntanlegan til Akureyrar í byrjun apríl en þessi kraftmikli framherji lék einnig með norðamönnum í 1. deildinni seinni hluta sumars 2012 og skoraði þá fimm mörk í níu leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×