Íslenski boltinn

Ingimundur tryggði FH sigur

Ingimundur Níels í leik gegn Fylki.
Ingimundur Níels í leik gegn Fylki.
FH-ingar eru komnir með fjögurra stiga forskot í riðli sínum í Lengjubikarnum eftir sigur, 0-1, á Þrótti í kvöld.

Það var Ingimundur Níels Óskarsson sem skoraði eina mark leiksins strax á upphafsmínútum leiksins.

FH er með fjórtán stig á toppi riðilsins en Þór er í öðru sæti með ellefus tig. Þróttur er í fimmta sæti með fjögur stig en átta lið eru í riðlinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×