Innlent

Fjallað um svik Birgittu og dóma Sigga hakkara í einkaskilaboðum Wikileaks sem láku á netið

Birgir Olgeirsson skrifar
Birgitta er kölluð svikari en jafnframt hrósað fyrir hugrekki að hafa heimsótt Assange í sendiráðið. Dómum yfir Sigga hakkara er fagnað í skilaboðunum sem var lekið á netið.
Birgitta er kölluð svikari en jafnframt hrósað fyrir hugrekki að hafa heimsótt Assange í sendiráðið. Dómum yfir Sigga hakkara er fagnað í skilaboðunum sem var lekið á netið.

Birgitta Jónsdóttir, fyrrverandi þingmaður Pírata, er kölluð svikari og kynferðisbrotadómi yfir Sigurði Inga Þórðarsyni, oftast kallaður Siggi Hakkari, er fagnað í einkaskilaboðum forsvarsmanna uppljóstrunarsíðunnar WikiLeaks sem hefur verið lekið á netið.

Það var blaðamaðurinn Emma Best sem birti um ellefu þúsund einkaskilaboð af Twitter síðastliðinn sunnudag en hún heldur því fram að í skilaboðunum sé að finna níð í garð minnihlutahópa.

Er um að ræða samskipti í einkaskilaboðakerfi Twitter sem fóru í gegnum Twitter-reikning Wikileaks-samtakanna.

Julian Assange, stofnandi Wikileaks, við sendiráðið Ekvador í London.Vísir/Getty

Í skilaboðunum má sjá að sá sem ritaði í nafni Wikileaks-samtakanna, Julian Assange, virtist vera hlynntur flokki Repúblikana í Bandaríkjunum og er Hillary Clinton, fyrrverandi forsetaframbjóðanda Demókrata-flokksins, lýst sem manneskju sem haldin er persónuleikatruflun og kvalalosta. Ást á Barack Obama, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, virðist heldur ekki vera mikil.

Assange, stofnandi Wikileaks-samtakanna, dvelur enn í sendiráði Ekvador í London en þar hefur hann dvalið síðan árið 2012 eftir að hafa leitað hælis.

Samkvæmt gögnunum sem var lekið og birt eru á vef Emmu Best ritaði Assange um heimsókn Birgittu Jónsdóttur í sendiráðið. Skilaboðin voru send 29. október árið 2016 en þar segir Assange Birgittu hafa heimsótt hann í sendiráðið hálfu ári áður til að semja frið.

Birgitta Jónsdóttir, fyrrverandi þingmaður Pírata.Vísir/Getty

„Það er ekkert traust. Það er ekki hægt að treysta svikara,“ skrifar Assange um Birgittu en nefnir þó að sameiginlegir hagsmunir séu til staðar.



Assange er svarað af einum Twitter-notanda sem segir að það sé gott að heyra af þessu og annar tekur undir það en bætir við:



„Það var slæmt að horfa á eftir henni í gin Hollywood.“



Er þar vísað til þess að Birgitta var ráðgjafi við handritaskrif myndarinnar The Fifth Estate sem fjallar um ris Wikileaks.



Aðrir hrósa hugrekki Birgittu, að heimsækja Assange, og bendir einn á að Birgitta yrði varla sú eina sem myndi falla fyrir gylliboðum Hollywood. „Vonandi lærir hún af þessu,“ er ritað.



Birgitta Jónsdóttir staðfesti við fréttastofu RÚV að þessi fundur hefði átt sér stað í sendiráðinu. Sagði hún fundinn hafi verið vinsamlegan en að Assange hafi talað meira og minna um sjálfan sig.

Sigurður Ingi Þórðarson.vísir/stefán

Þá er fjallað um fregnir af kynferðisbrotadómi sem Sigurður Ingi Þórðarson, oftast kallaður Siggi hakkari, hlaut fyrir kynferðisbrot gegn níu drengjum. Ritar einn í einkaskilaboðum að hann fagni þeirri niðurstöðu.



„Pottþétt sjúkur einstaklingur,“ ritar einn um Sigurð og tekur annar undir það. Er Wikipedia-síða Sigurðar rædd og því haldið fram að einhver sé að reyna að fegra hana. Heldur einn því fram að alríkislögregla Bandaríkjanna FBI sé að undirbúa að fá hann frjálsan úr fangelsi og betrun hans. 



Sigurður starfaði með Julian Assange og félögum í Wikileaks. Samvinna þeirra Assange lauk þó ekki á góðu nótunum þar sem Assange sakaði hann um að hafa dregið að sér styrktarfé, á sjöundu milljón króna, sem átti að renna til samtakanna.


Tengdar fréttir

Birgitta staðfestir greiðslur frá Dreamworks

Birgitta Jónsdóttir situr undir ásökunum frá Wikileaks á Twitter um að hafa þegið greiðslur frá kvikmyndaverinu Dreamworks vegna kvikmyndarinnar The Fifth Estate. Birgitta telur Julian Assange skrifa í nafni Wikileaks. Birgitta staðfestir í samtali við fréttastofu að hafa fengið greitt fyrir ráðgjöf.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×