Innlent

Kallar eftir bættu öryggi á ærsla­belgjum eftir að dóttir slasaðist

Kristinn Haukur Guðnason skrifar
Svavar kallar eftir því að sveitarstjórnir og foreldrar ræði leiðir til að bæta öryggi við ærslabelgi.
Svavar kallar eftir því að sveitarstjórnir og foreldrar ræði leiðir til að bæta öryggi við ærslabelgi.

Hafnfirðingurinn Svavar Halldórsson kallar eftir bættu öryggi á ærslabelgjum eftir að tíu ára dóttir hans slasaðist á Víðistaðatúni. Tognaði hún eftir að hafa verið hrint af eldri dreng.

Á þriðjudaginn var tíu ára dóttir Svavars að leika sér á ærslabelgnum, syðst á Víðistaðatúni í Hafnarfirði, þegar henni var hrint af eldri dreng. Varð hún fyrir slæmri tognun á fæti og þurfti að fara með hana á slysadeild Landspítalans. Samkvæmt Svavari er hún að ná sér.

„Þó að langstærstum hluta fari allt saman vel fram geta alltaf komið upp svona tilvik,“ segir Svavar. „Það sem ég hef heyrt af er þegar eldri krakkar mæta á svæðið.“ En hann hefur sjálfur séð krakka á umræddum belg sem séu sýnilega komnir af grunnskólaaldri.

Í kjölfarið af þessu hefur Svavar kallað eftir umræðu um öryggi við ærslabelgi, bæði hjá foreldrum og innan sveitarstjórna. En ærslabelgir eru yfirleitt í eigu sveitarfélaga.

Svavar bendir á að belgirnir séu opnir í marga klukkutíma á dag. Oft eru engir fullorðnir að fylgjast með og engar myndavélar til að taka upp ef atvik eða slys skeður. Slæmt sé að hafa engin gögn í höndunum.

Myndavélar og gæsla vinnuskólans

Svavar segir óvíst með ábyrgð þegar atvik kemur upp á ærslabelg. Hann beinir þó þrennu til sveitarstjórna og foreldra til að bæta öryggi við belgina.

„Ég legg til að það verði komið upp öryggismyndavélum við belgina, til að eldri krakkarnir viti að það sé fylgst með þeim,“ segir Svavar.

Mikill fjöldi barna safnast gjarnan saman á ærslabelgnum á Víðistaðatúni. Oft er ekkert fullorðið fólk að fylgjast með.Hafnarfjarðarbær

Yrðu þetta myndavélar sambærilegar þeim sem settar hafa verið upp í miðborg Reykjavíkur sem dæmi þar sem hægt er að skoða atvik sem koma upp.

Önnur aðgerð væri að efla foreldraröltið á sumrin, en Svavar nefnir að á veturna sé foreldraröltið í tengslum við þrjá grunnskóla Norðurbæjar Hafnarfjarðar öflugt.

Í þriðja lagi verði það skoðað hvort hægt sé að nýta vinnuskólann að einhverju leyti til að hafa vörslu við belgi á sumrin.

Mun ræða við bæjarstjóra

„Við foreldrarnir höfum hingað til fengið mjög góða áheyrn hjá bæjarstjóranum,“ segir Svavar aðspurður um næstu skref. En hann segist gera ráð fyrir að þessi umræða rati til bæjarstjórnar á einhverjum tímapunkti. En umræðan þarf einnig að eiga sér stað á meðal foreldranna.

„Ef það eru til einfaldar leiðir til þess að geta dregið úr hættunni á svona atvikum þá tel ég að við foreldrarnir ættum að skoða það,“ segir hann.


Tengdar fréttir

Ærslabelgur í klóm eineltishrotta

Hópur foreldra og forráðamanna barna í Reykjanesbæ hefur áhyggjur af því að leiksvæði ungmenna við 88 húsið, svokallaður Ungmennagarður, sé í heljargreipum eineltishrotta.

Enn tekist á um ærslabelginn á Ísafirði

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur hafnað kröfu íbúa um að ógilda ákvörðun bæjaryfirvalda á Ísafirði um að verða ekki við kröfu hans um að ærslabelgur í bænum verði færður.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×