Samstarf

Hlunkurinn kominn í fantaform

Kjörís
„Hlunkurinn verður áfram sami gamli hlunkurinn þó hann hafi lagt örlítið af og mun ekki valda neinum vonbrigðum." 
„Hlunkurinn verður áfram sami gamli hlunkurinn þó hann hafi lagt örlítið af og mun ekki valda neinum vonbrigðum." 

Gamli góði Hlunkurinn frá Kjörís er nú með nýju sniði.

Sumum neytendum kann að bregða í brún á næstunni þegar þeir fara að gæða sér á hlunki frá Kjörís en þessi klassíski frostpinni er orðinn skornari, hærri og grennri en hann var.

Breytingarnar segir segir Elías Þór Þorvarðarson, sölu- og markaðstjóri Kjörís, tilkomnar vegna nýrrar vélasamstæðu sem Kjörís festi nýlega kaup á. Nýja vélasamstæðan muni auka afköst verulega hjá fyrirtækinu en Elías Þór lofar að uppskriftin haldist þó óbreytt eins og hún hefur verið í 40 ár enda eigi Hlunkurinn sér vissan stað í frystikistum landsmanna.

„Við vorum mjög hræddir við að fara í þessar breytingar þar sem við vitum að viðskiptavinir okkar eru mjög vanafastir og því var allt gert til að halda vörum fyrirtækisins eins upprunalegum í útliti og kostur var.

 Hlunkurinn verður áfram sami gamli hlunkurinn þó hann hafi lagt örlítið af og mun ekki valda neinum vonbrigðum. 

Við viljum meina að þessi breyting sé í takt við tíðarandann því eigum við ekki að segja að landsmenn séu flestir í mun betra formi sjálfir í dag en fyrir 40 árum síðan,“ segir Elías Þór.

Breytingar á pakkningum í pinnalínu

Fleiri breytingar eru nú sjáanlegar á pinnalínu Kjörís í kjölfar kaupa á nýjum vélum og hafa umbúðirnar meðal annars verið endurhannaðar.

„Flaugarnar okkar breytast reyndar ekkert í útliti en það hýrnaði verulega yfir dýrunum sem taka fagnandi við pinnum úr nýjum vélum í nýjum umbúðum. Nýja pökkunarvélin hefur aðeins 8 fingur og ræður því bara við 8 pinna í pakkningu í stað 10 áður, en þá fer bara svo mikið betur um alla í boxinu,“ segir Elías Þór.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×