Tónlist

Fögnuðu ekki bara plötunni með Júlí Heiðari heldur lífinu sjálfu

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Júlí Heiðar tók að sjálfsögðu nokkur lög.
Júlí Heiðar tók að sjálfsögðu nokkur lög. Hafsteinn Snær Þorsteinsson

Útgáfupartý Júlí Heiðars Halldórssonar fór fram í Bragganum síðastliðinn föstudag. Margt var um manninn þar sem mannskarinn fagnaði plötunni og lífinu með tónlistarmanninum ástsæla. Hann átti nefnilega afmæli og tilefni til fögnuðar mikið.

„Platan þrjátíu og þrír kom út 22. mars síðastliðinn og er gefin út af Öldu Music. Platan er fyrsta breiðskífan mín á ferlinum en ég hef gefið út hátt í tuttugu lög sem lagahöfundur eða flytjandi. Einnig hef ég gefið út þrjár EP plötur með hljómsveitum en aldrei breiðskífu svo það var klárlega kominn tími á hana,“ segir Júlí Heiðar. 

Að plötunni koma þrír pródúserar, þeir Ásgeir Orri Ásgeirsson, Ingimar Birnir Tryggvason og Bjarki Ómarsson. Það eru svo þeir Bjarki Ómarsson og Sæþór Kristjánsson sem sjá um hljóðblöndun og hljóðjöfnun á plötunni.

„Þrjátíu og þrír er í grunninn popp plata þó sum lögin teygi sig í aðrar áttir. Þegar ég fór af stað í verkefnið langaði mig að hver pródúsent fengi rými til þess að gera sitt. Útkoman er frekar fjölbreytt plata sem var nákvæmlega það sem ég lagði upp með.“

Júlí Heiðar segir textana marga hverja persónulega. Það hafi verið rauður þráður í lögunum hans síðustu þrjú ár. Þó komi textar inn á milli sem hafi sprottið hafi upp úr flæði í upptökunum.

„Það sem stóð upp úr í þessu ferli er klárlega samstarfið með öllu því frábæra fólki sem kom að plötunni, pródúserar, Anna Maggý sem sá um artworkið og allir þessir geggjuðu gestaflytjendur sem gáfu sér tíma í að taka þátt í verkefninu. Patrik, Jói Pé, Gugusar, Kristmundur Axel og Huginn.“

Hafsteinn Snær Þorsteinsson
Hafsteinn Snær Þorsteinsson
Mamma, systir og amma Júlís.Hafsteinn Snær Þorsteinsson
Gugusar tók lagið.Hafsteinn Snær Þorsteinsson
Ingimar og Thelma systir hans.Hafsteinn Snær Þorsteinsson
Sigsteinn og frú létu sig ekki vanta.Hafsteinn Snær Þorsteinsson
Rúnar, Júlí og Ingimar í góðum félagsskap.Hafsteinn Snær Þorsteinsson
Vilhjálmur, Guðný Ósk, Þórdís Björk og Tryggvi.Hafsteinn Snær Þorsteinsson
Hafsteinn Snær Þorsteinsson
Mikil stemning var í hópnum.Hafsteinn Snær Þorsteinsson
Daði, Gústi B, Páll Orri, Friðþóra og Patrik.Hafsteinn Snær Þorsteinsson
Hafsteinn Snær Þorsteinsson
Rúnar og Ingimar ásamt félaga þeirra.Hafsteinn Snær Þorsteinsson
Júlí Heiðar og Þórdís Björk voru glæsileg.Hafsteinn Snær Þorsteinsson
Ingimar Tryggvason.Hafsteinn Snær Þorsteinsson
Auður Magnea og kærastinn hennar.Hafsteinn Snær Þorsteinsson
Júlí og Patrik skemmtu gestum eins og þeim einum er lagið.Hafsteinn Snær Þorsteinsson
Kristmundur Axel.Hafsteinn Snær Þorsteinsson
Júlí ásamt foreldrum sínum.Hafsteinn Snær Þorsteinsson
Júlí, Magga og Patrik.Hafsteinn Snær Þorsteinsson
Kristmundur Axel og Júlí Heiðar tóku lagið.Hafsteinn Snær Þorsteinsson

Hægt er að hlusta á plötuna í heild sinni hér að neðan:






Fleiri fréttir

Sjá meira


×