Sport

Dag­skráin í dag: Grannaslagur og körfuboltaveisla

Valur Páll Eiríksson skrifar
Nýkrýndir bikarmeistarar Keflavíkur mæta Njarðvík í grannaslag.
Nýkrýndir bikarmeistarar Keflavíkur mæta Njarðvík í grannaslag. Vísir/Hulda Margrét

Nóg er um að vera í Subway deild karla í dag er næstsíðasta umferð deildarinnar fer fram. Allir leikirnir verða sýndur á rásum Stöðvar 2 Sport.

Subway deildin

Haukar og Álftanes mætast í fyrsta leik dagsins sem sýndur er beint klukkan 16:00 á Stöð 2 Sport.

Leikur Hattar og Tindstóls hefst klukkustund síðar, klukkan 17:00 á Stöð 2 Sport Subway deildin.

Leikur Stjörnunnar og Grindavíkur er þá klukkutíma eftir það, klukkan 18:00 á Stöð 2 Sport 5.

Á hefðbundnari tíma, klukkan 19:15 eru tveir leikir. Hamar mætir Þór Þorlákshöfn, sem sýnt verður frá á Stöð 2 Subway deildin, og Valur tekur á móti Breiðabliki í leik á Stöð 2 Sport Subway deildin 2.

Baráttan um Reykjanesbæ verður háð er Keflavík og Njarðvík eigast við klukkan 20:00 á Stöð 2 Sport.

Allir leikirnir verða gerðir upp af Herði Unnsteinssyni og félögum í Tilþrifunum klukkan 22:00 á Stöð 2 Sport, strax að grannaslagnum loknum.

Golf, píla og íshokkí

Bestu píluspilarar heimsins eiga sviðið í Úrvalsdeildinni í pílu sem sýnt verður frá klukkan 18:55 á Vodafone Sport.

Keppni hefst á Ford Championship á LPGA mótaröðinni í dag en bein útsending frá því er klukkan 22:00 á Stöð 2 Sport 5.

Deginum er þá lokað á hokkíi í NHL-deildinni með leik Maple Leafs gegn Capitals klukkan 23:05 á Vodafone Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×