Innlent

Vill meiri og betri lög­gæslu í Mýr­dals­hreppi

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Einar Freyr Elínarson, sveitarstjóri Mýrdalshrepps, sem biður um betri og meiri löggæslu í sveitarfélaginu.
Einar Freyr Elínarson, sveitarstjóri Mýrdalshrepps, sem biður um betri og meiri löggæslu í sveitarfélaginu. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Sveitarstjóri Mýrdalshrepps gagnrýnir stöðu löggæslumála í sveitarfélaginu, sem hann segir allt of litla á sama tíma og þúsundir ferðamanna heimsækja þorpið í Vík á hverjum degi og þekkta ferðamannastaði í sveitarfélaginu eins og Reynisfjöru.

Það er stöðug íbúafjölgun í Vík í Mýrdal og mjög mikið af ferðamönnum sem dvelja á hótelunum í þorpinu eða keyra í gegnum það. Þá eru mjög fjölmennir ferðamannastaði í sveitarfélaginu og nægir þar að nefna Reynisfjöru. Góð löggæsla er því mikilvæg á stað eins og í Vík og í Mýrdalshreppi reyndar öllum því umferðin er svo mikil. Á meðan lögreglumaður er ekki á vakt í Vík þá er lögreglumaður á Klaustri á vakt en það er tæplega klukkutíma akstur á milli staðanna.

Nú styttist hins vegar í að ný og glæsileg lögreglustöð verði opnuð í Vík.

Einar Freyr Elínarson er sveitarstjóri Mýrdalshrepps.

„Já, það var stór áfangi ætla ég að segja fyrir okkur að fá það staðfest að ríkið ætlaði loksins að fara að búa til almennilega aðstöðu hérna fyrir þá sem starfa við löggæslu. Nú er bara næst að fá fleiri lögreglumenn hérna á svæðið vegna þess að við sættum okkur auðvitað ekkert við það að það sé ekki búsettur hérna lögreglumaður hálfan mánuðinn,“ segir Einar Freyr.

Já, er það þannig?

„Það er staðan, hálfan mánuðinn þá er engin á vakt hjá lögreglunni, sem er búsettur í Vík. Það er ekki staða, sem við getum sætt okkur við, hvorki upp á öryggi íbúa að gera eða öryggi allra þeirra þúsunda ferðamanna, sem eru á koma hérna á hverjum degi“ segir Einar Freyr og heldur áfram.

„Við höfum komið á framfæri þessu gagnvart lögreglustjóranum að þetta þurfi að bæta en aðstaðan er auðvitað liður í því, gerir auðvitað að meira spennandi starfi að vera í almennilegri starfsaðstöðu.“

Þúsundir ferðamanna koma í Vík í Mýrdal á hverjum degi og hefur ferðamannafjöldinn sjaldan eða aldrei verið eins mikill og í vetur.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Einar Freyr tekur líka fram að það sé mjög slæmt að lögreglubílarnir á svæðinu séu ekki tvímannaðir á Kirkjubæjarklaustri og Vík því ef eitthvað alvarlegt gerist þá eigi einn lögreglumaður mjög erfitt með að fara inn í hættulegar aðstæður, það segi sig sjálft.

Einar Freyr segir að það verði að efla löggæslu í Mýrdalshreppi.Magnús Hlynur Hreiðarsson


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×