Stein­dautt jafn­tefli á Eti­had

Siggeir Ævarsson skrifar
Erling Haaland fékk ekki úr miklu að moða í leiknum í dag en fékk ósjaldan óblíðar móttökur frá varnarmönnum Arsenal
Erling Haaland fékk ekki úr miklu að moða í leiknum í dag en fékk ósjaldan óblíðar móttökur frá varnarmönnum Arsenal vísir/Getty

Englandsmeistarar Manchester City tóku á móti toppliði Arsenal í einum af stærstu leikjum ensku úrvalsdeildarinnar á þessu tímabili. Leikurinn varð því miður ekki sú flugeldasýning sem margir höfðu vonast eftir.

Gestirnir í Arsenal vörðust mjög vel í leiknum. City-liðar héldu boltanum mun meira en sköpuðu sér ekki eitt einasta hættulegt færi. Raunar gerði Arsenal það ekki heldur en xG stuðullinn hjá báðum liðum var undir einum.

Arsenal-menn lágu aftarlega á vellinum, vörðust vel og voru skipulagðir og beittu skyndisóknum þegar þeir gátu, en þeir náðu aðeins að skapa sér eitt marktækifæri í seinni hálfleik meðan City-menn dútluðu sér í hálffærum.

Netverjar gáfu innbyrðis spili City í það minnsta ekki háa einkunn.

Niðurstaðan sanngjarnt 0-0 jafntefli sem gerir lítið fyrir bæði lið en Liverpool er án vafa sigurvegari dagsins í toppbaráttunni, einir á toppnum með 67 stig, tveimur stigum á undan Arsenal og þremur á undan City.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira