Bílar

Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Hilmar Jacobsen, gjaldkeri Mustangs klúbbsins á Íslandi, sem hvetur fólk til að koma á sýninguna í dag.
Hilmar Jacobsen, gjaldkeri Mustangs klúbbsins á Íslandi, sem hvetur fólk til að koma á sýninguna í dag. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Allir flottustu Mustang bílar landsins eru nú til sýnis á 60 ára afmælissýning Mustang, sem fer fram í Brimborg í Reykjavík. Reiknað er með um fjögur þúsund manns á sýninguna, sem stendur til klukkan 16:00 í dag.

Mustang sýningin opnaði klukkan 10:00 i morgun og þá strax var komið fullt af fólki til að berja bílana augum. Sýningin fer fram í sal Brimborgar í Ford salnum að Bíldshöfða 6 í Reykjavík. Um 35 bílar eru á sýningunni.

Hilmar Jacobsen er gjaldkeri íslenska Mustang klúbbsins.

„Hér er bara allt fullt af fólki og allir að horfa á og skoða fallegustu Mustangana á Íslandi. Þetta er mjög flott og skemmtileg sýning, eitthvað sem engin má missa af því þarna færðu bara allar kynslóðir af Mustang, dýrustu, flottustu og sjaldgæfustu Mustganga, sem þú sérð yfirleitt aldrei og ef þú ert heppin þá sérðu kannski einn, tvo eða þrjá af þeim á sumri en þarna getur þú skoðað þá alla á einu bretti,“ segir Hilmar.

Reiknað er með að um fjögur þúsund manns munu mæta á sýningu dagsins, sem fer fram í sal Brimborgar í Ford salnum að Bíldshöfða 6 í Reykjavík. Um 35 bílar eru á sýningunni.Aðsend

Á meðal bílanna er elsti Mustang landsins, sem var framleiddur í maí 1964 og á sýningunni er líka nýjasti Mustanginn, sem er frá 2021.

En hvað er svona merkilegt við þessa bíla, Mustang?

„Mustang er náttúrulega bílategund, sem hefur verið framleidd stanslaust frá 1964 og hefur verið notuð í hundruð bíómynda og öðru. Þetta eru bara rosalega fallegur bíll, sem allir þekkja. Mustang, þegar þú heyrir það, þá dettur þér bara í hug ógeðslega flottur bíll. Þetta er bara lífsstíll að eiga Mustang,” bætir Hilmar við.

Og Hilmar á von á miklum fjölda á sýninguna í dag, sem stendur til klukkan 16:00.

„Það er frítt inn og það verður gos og nammi á meðan birgðir endast. Það er eins og ég segi, ég býst bara við hátt í fjögur þúsund manns hérna í dag,” segir Hilmar.

Um 35 bílar eru á sýningu dagsins.Aðsend


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×