Erlent

Segir Banda­ríkja­menn þurfa að þrýsta á Ísraela

Samúel Karl Ólason skrifar
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra. Vísir/Arnar

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, formaður VG og félags- og vinnumarkaðsráðherra, segir að gera þurfi þá kröfu á ráðamenn í Bandaríkjunum að þeir beiti ríkisstjórn Ísraels mun meiri þrýstingi um að leggja niður vopn. Það sé besta leiðin til að koma á friði fyrir botni Miðjarðarhafs.

Þetta skrifar Guðmundur í grein sem birtist á Vísi í dag en hún ber titilinn: Innrás á Rafah stríðir gegn allri mannúð.

Greinin fjallar að miklu leyti um árásir á Rafah í suðurhluta Gasastrandarinnar. Þar lögðu ísraelskir hermenn í nótt undir sig landamærastöðvar Gasa og Egyptalands og hafa ráðamenn í Ísrael hótað því að gera umfangsmikla árás á borgina.

Fjölmargir íbúar Gasastrandarinnar hafa flúið til Rafah á undanförnum mánuðum og hafa Ísraelar gert loftárásir á borgina í nótt og í dag.

„Það er algjörlega óásættanlegt að Ísrael ráðist inn í Rafah. Þangað hefur yfir milljón manna flúið, en fólkið hefur í raun ekki til neins annars staðar að hverfa, enda Gaza-svæðið að stórum hluta til rústir einar. Volker Türk mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur sagt skipanir Ísraelsmanna séu ómannúðlegar og fari gegn alþjóðalögum. Að beita hernaði sem bitnar beint á óbreyttum borgurum sem ekki geta flúið stríðir gegn allri mannúð,“ skrifar Guðmundur.

Palestínsk kona sem særðist í loftárás á Rafah flutt á sjúkrahús.AP/Ismael Abu Dayyah

Hann segir ísland hafa notað rödd sína til að tala fyrir friði og vísar til þess að Alþingi hafi þann 9. október samþykkt þingsályktun þar sem þess er krafist að komið verði á vopnahléi án tafar. Þá styðji íslands tveggja ríkja lausn og hafi viðurkennt Palestínu sem sjálfstætt og fullvalda ríki frá 2011.

„Ísrael verður að láta af hernámi Vesturbakkans og hætta stríðsrekstrinum á Gaza. Aðeins þannig getur tveggja ríka lausnin raungerst, sem er forsenda friðar á svæðinu.“

Guðmundur segir Bandaríkin hafa mest að segja um að koma á friði en erindrekar Bandaríkjanna hafi beitt neitunarvaldi í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna.

„Gera verður þá kröfu að Bandaríkin beiti Ísraelsstjórn stórauknum þrýstingi um að leggja niður vopn,“ skrifar Guðmundur.

Fregnir hafa borist af því í dag að ríkisstjórn Joe Biden hafi haldið aftur af vopnasendingum til Ísrael, með því markmiði að senda ráðamönnum í Ísrael skilaboð en ráðamenn í Bandaríkjunum, og víða annarsstaðar, hafa lýst yfir áhyggjum af ætlunum Ísraela í Rafah.

Friðarviðræðurnar „síðasta tækifærið“

Friðarviðræður eiga sér nú stað í Karíó í Egyptalandi en þær hafa reynst erfiðar. Leiðtogar Hamas-samtakanna samþykktu í gær tillögu að vopnahléi frá Egyptum en ráðamenn í Ísrael segja tillöguna langt frá því að vera í samræmi við kröfur Ísraela.

Sjá einnig: Til­lagan „langt frá“ grundvallarkröfum Ísraela

Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, sagði í dag að samþykkt Hamas á tillögunni í gær hafi verið ætlað að koma í veg fyrir áhlaup Ísraela inn í Rafah. Hann sagði því áhlaupi ætlað að frelsa þá gísla sem væru enn í haldi Hamas og gera út af við Hamas-samtökin.

„Ísrael mun ekki leyfa Hamas að endurreisa stjórn þeirra á Gasaströndinni,“ sagði Netanjahú í ávarpi í dag. Hann sagði að samtökunum yrði ekki leyft að byggja upp mátt að nýju og ógna öryggi Ísrael.

Viðræður um tillöguna hafa þó farið fram í dag og Netanjahú sagði að hann hefði skipað erindrekum sínum að standa keikir á kröfum skilyrðum Ísrael.

Ísraelskir skrið- og bryndrekar við landamæri Gasa og Egyptalands í Rafah.AP/IDF

Háttsettur meðlimur Hamas lýsti því yfir í dag að viðræðurnar í Kaíró væru síðasta tækifæri Ísraela til að frelsa gísla sína úr haldi. Í samtali við AFP fréttaveituna sagði viðkomandi leiðtogi að Netanjahú hefði með því að ráðast á Rafah tekið þá ákvörðun að láta gíslana deyja.

Hamas-liðar og aðrir tóku 252 í gíslingu þann 7. október og 128 eru enn í haldi, eftir því sem best er vitað.

Hamas birti í dag yfirlýsingu um að sjötug kona sem hefði verið tekin í gíslingu hefði særst í loftárás Ísraela fyrir um mánuði síðan. Í yfirlýsingunni segir að Judy Weinstein hafi látist af sárum sínum því hún hafi ekki getað fengið aðhlynningu vegna árása Ísraela á sjúkrahús á Gasaströndinni.

Yfirvöld í Ísrael lýstu því þó yfir í desember að Weinestein hefði verið myrt þann 7. október og að lík hennar hefði verið tekið flutt á Gasaströndina. Eiginmaður hennar var einnig myrtur og lík hans flutt til Gasa.


Tengdar fréttir

Hamas samþykkir vopnahléstillögu

Leiðtogar Hamas-samtakanna hafa samþykkt vopnahléstillögu erindreka frá Egyptalandi og Katar. Í yfirlýsingu frá samtökunum segir að Ismail Haniyeh, leiðtogi Hamas, hafi hringt í forsætisráðherra Katar og upplýsingaráðherra Egyptlands í dag og tilkynnt þeim að tillagan hefði verið samþykkt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×