Bandaríkjamenn gera loftárásir á Íran Rafn Ágúst Ragnarsson og Samúel Karl Ólason skrifa 22. júní 2025 00:01 Donald Trump, forseti Bandaríkjanna. AP/Alex Brandon Bandaríkjamenn hafa gert loftárásir á þrjár kjarnorkurannsóknarstöðvar í Íran. Þeirra á meðal er neðanjarðarmiðstöðin í Fordó til auðgunar úrans sem er grafin áttatíu metrum undir fjalli. Er hún talin hryggjarstykkið í kjarnorkuvopnaframleiðslugetu Írana.
Trump greindi frá þessu í færslu á samfélagsmiðlinum sínum skömmu fyrir miðnætti á íslenskum tíma. Þar segir hann Bandaríkin hafa varpað sprengjum á Fordó, Natanz og Esfahan. Allar flugvélarnar sem notaðar voru til árásanna séu komnar út fyrir íranska lofthelgi. „Fullum farmi af SPRENGJUM var varpað á aðalstöðina, Fordó. Allar flugvélarnar eru heilar og á leiðinni heim. Hamingjuóskir til hinna miklu bandarísku stríðsmanna okkar. Það er enginn annar her í heimi sem gæti gert þetta. NÚ ER KOMINN TÍMI Á FRIÐ! Ég þakka þeim sem hlýddu,“ skrifar Bandaríkjaforseti. Blaðamaður fréttaveitunnar Reuters hefur eftir heimildarmanni sínum í bandaríska hernum að B-2 Spirit-sprengjuflugvélum hafi verið beitt við árásirnar. Óljóst er hve margar voru notaðar við árásirnar en Bandaríkin búa yfir nítján slíkum vélum en þær eru þær einu sem eru útbúnar til að geta varpað sprengjum af gerðinni GBU-57 eða svokölluðum byrgjabrestum. Orð Trumps í færslunni um að tími sé kominn á frið gefa til kynna að hann hafi ekki áhuga á frekari árásum á Íran. Það gæti þó breyst, svari Íranar fyrir sig með eldflauga- og drónaárásum á bandarískar herstöðvar í Mið-Austurlöndum. Ráðamenn í Íran höfðu hótað slíkum árásum, ef Bandaríkjamenn gerðu árásir á Íran. Donald Trump Bandaríkjaforseti mun ávarpa þjóð sína klukkan tvö í nótt að íslenskum tíma. Í tilkynningu sinni þess efnis segir hann árásina marka sögulega stund fyrir Bandaríkin, Ísrael og heiminn allan og segir að Íranir hljóti að gangast við því að ljúka þessu stríði að svo komnu máli. New York Times hefur eftir þremur nafnlausum írönskum embættismönnum að árásirnar á Fordó og Natanz hafi verið gerðar um klukkan ellefu að íslenskum tíma. Fréttin hefur verið uppfærð.
Bandaríkin Íran Tengdar fréttir Takmarkið „enn sem komið er“ ekki að steypa klerkastjórninni af stóli Utanríkisráðherra Ísraels segir að árásir Ísraelsmanna á kjarnorku- og hernaðarinnviði í Íran hafi tafið framleiðslu klerkastjórnarinnar í Íran á kjarnorkuvopnum í að minnsta kosti tvö ár. 20. júní 2025 23:48 Árásir halda áfram meðan fundað er í Genf Íranir og Ísraelar hafa haldið áfram loftárásum á víxl í dag. Björgunarsveitir í Ísrael segja einn látinn og tugi særða eftir árás Írana á borgina Haifa síðdegis í dag. Á meðan funduðu utanríkisráðherrar Bretlands, Frakklands og Þýskalands með utanríkisráðherra Íran í Genf í von um að finna diplómatíska lausn við stríði Ísrael og Íran. 20. júní 2025 17:27 Kynnti sér mögulegar árásir: „Að klára verkið þýðir að rústa Fordo“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er þeirrar skoðunar að þörf sé á því að gera kjarnorkurannsóknarstöð Írana í Fordo óvirka. Það þurfi til að koma í veg fyrir að klerkastjórnin í Íran komi sér upp kjarnorkuvopnum. 19. júní 2025 16:28 Vill ekki í stríð en segir klerkastjórnina ekki mega eignast kjarnorkuvopn Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagðist ekki hafa tekið ákvörðun um það hvort hann ætlaði að gera árásir á kjarnorkurannsóknarstöðvar í Íran. Hann sagðist ekki vilja í stríð við Íran en sagði að þegar valið stæði milli þess að berjast eða leyfa klerkastjórninni í Íran að eignast kjarnorkuvopn yrði maður „að gera það sem maður þarf að gera“. 18. júní 2025 22:01 Mest lesið Tuttugu og tveir látnir eftir sjálfsmorðsárás í kirkju Erlent Trump hellir sér yfir flokksbróður sinn: „MAGA ætti að losa sig við þennan aumkunarverða aumingja“ Erlent Sjálfboðaliðar að bugast: Mikil örvænting meðal gæludýraeigenda Innlent Sagt að hann gæti ekki klárað námið en gerði það samt Innlent Bíll við bíl frá Ártúnsbrekku upp í Mosfellsbæ Innlent Kjarnavopnvædd klerkastjórn sé ógn við Norðurlönd Innlent Vaktin: Bandaríkin gera árásir á Íran Erlent Vara við því að ölvuðu fólki sé boðið að sitja að sumbli í Lystigarðinum Innlent Hvalfjarðargöng eru lokuð Innlent Álftapar með fjóra unga við Hótel Rangá vekur athygli Innlent Fleiri fréttir Tuttugu og tveir látnir eftir sjálfsmorðsárás í kirkju Trump hellir sér yfir flokksbróður sinn: „MAGA ætti að losa sig við þennan aumkunarverða aumingja“ Tíu Íslendingar í Íran og fjórir í Ísrael Aðdragandinn: Hótanir og árásir á hótanir og árásir ofan Embættis- og ráðamenn tjá sig um árásina Vaktin: Bandaríkin gera árásir á Íran Árás Bandaríkjanna á Íran: „Íran, yfirgangsseggur Miðausturlandanna, verður að boða til friðar“ Bandaríkjamenn gera loftárásir á Íran Átta látnir hið minnsta eftir að kviknaði í loftbelg Ísraelar bíði ekki eftir grænu ljósi Trump Leiðtogi í hvítrússnesku andspyrnuhreyfingunni frjáls Tugir látnir eftir þeir reyndu að sækja sér mat Tilnefna Bandaríkjaforseta til friðarverðlauna Nóbels Óvissu erlendra nemenda tímabundið eytt Aðgerðasinninn látinn laus en Hvíta húsið hyggst brottvísa Hátt í sjö hundruð látist í árásum Ísraela Takmarkið „enn sem komið er“ ekki að steypa klerkastjórninni af stóli Árásir halda áfram meðan fundað er í Genf Hyggst eftirláta á annað hundrað börnum sínum Telegram-auðinn Skrefi nær því að leyfa dauðvona fólki að leita sér dánaraðstoðar Sporvagni ekið inn í matarvagn í Gautaborg Danskur ráðherra kann ekki að meta auglýsingar Meta Hafnar tillögu um að verja fimm prósentum í varnamál Utanríkisráðherrar funda um Íran í Genf Frestar aftur TikTok-banni Kynnti sér mögulegar árásir: „Að klára verkið þýðir að rústa Fordo“ Áhlaup ICE og óvissan veldur vandræðum Farið í gegnum „kolefnisþakið“ eftir þrjú ár Sagði Khamenei „nútíma Hitler“ og að markmiðið sé að fella hann Geimskipið sprakk á jörðu niðri Sjá meira
Takmarkið „enn sem komið er“ ekki að steypa klerkastjórninni af stóli Utanríkisráðherra Ísraels segir að árásir Ísraelsmanna á kjarnorku- og hernaðarinnviði í Íran hafi tafið framleiðslu klerkastjórnarinnar í Íran á kjarnorkuvopnum í að minnsta kosti tvö ár. 20. júní 2025 23:48
Árásir halda áfram meðan fundað er í Genf Íranir og Ísraelar hafa haldið áfram loftárásum á víxl í dag. Björgunarsveitir í Ísrael segja einn látinn og tugi særða eftir árás Írana á borgina Haifa síðdegis í dag. Á meðan funduðu utanríkisráðherrar Bretlands, Frakklands og Þýskalands með utanríkisráðherra Íran í Genf í von um að finna diplómatíska lausn við stríði Ísrael og Íran. 20. júní 2025 17:27
Kynnti sér mögulegar árásir: „Að klára verkið þýðir að rústa Fordo“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er þeirrar skoðunar að þörf sé á því að gera kjarnorkurannsóknarstöð Írana í Fordo óvirka. Það þurfi til að koma í veg fyrir að klerkastjórnin í Íran komi sér upp kjarnorkuvopnum. 19. júní 2025 16:28
Vill ekki í stríð en segir klerkastjórnina ekki mega eignast kjarnorkuvopn Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagðist ekki hafa tekið ákvörðun um það hvort hann ætlaði að gera árásir á kjarnorkurannsóknarstöðvar í Íran. Hann sagðist ekki vilja í stríð við Íran en sagði að þegar valið stæði milli þess að berjast eða leyfa klerkastjórninni í Íran að eignast kjarnorkuvopn yrði maður „að gera það sem maður þarf að gera“. 18. júní 2025 22:01
Trump hellir sér yfir flokksbróður sinn: „MAGA ætti að losa sig við þennan aumkunarverða aumingja“ Erlent
Trump hellir sér yfir flokksbróður sinn: „MAGA ætti að losa sig við þennan aumkunarverða aumingja“ Erlent