Innlent

Kísilver í Helguvík í óvissu

Kristján Már Unnarsson skrifar
Áform um kísilver í Helguvík eru í uppnámi og gæti svo farið að samningum verði rift á næstu dögum og hætt við verkefnið. Ástæðan er krafa bandarískra fjárfesta um afslátt frá orkuverði.

Til stóð að 150 manns fengju vinnu við smíði kísilversins, sem átti að hefjast í Helguvík í fyrrasumar, og síðan yrðu til 90 framtíðarstörf þegar rekstur hæfist. Það bólar hins vegar ekkert á framkvæmdum.

Íslenska kísilfélagið er 85% í eigu bandaríska fyrirtækisins Globe Speciality Metals. Fyrirvarar voru í samningunum, sem undirritaðir voru fyrir ári, og á grundvelli þeirra hefur kísilfélagið fjórum sinnum fengið frestað fullgildingu orkusamningsins við Landsvirkjun og HS Orku, fyrst frá 15. júní til 15. ágúst, síðan til 15. október, svo til 15. desember og síðast fékk kísilfélagið frest til 15. febrúar, það er til næstkomandi miðvikudags.

Samkvæmt heimildum Stöðvar 2 hefur Landsvirkjun nú tilkynnt ráðamönnum kísilfélagsins að frekari frestir verði ekki veittir og nú sé komið að því að taka endanlega ákvörðun, af eða á. Globe-menn hafa svarað á móti að þeir treysti sér ekki til að hefjast handa nema orkusamningurinn verði endurskoðaður. Bæði vilja þeir seinka afhendingartíma orkunnar vegna tafa á verkefninu en einnig vilja þeir afslátt frá orkuverði vegna verðlækkunar á kísil.

Málið er á afar viðkvæmu stigi en báðir aðilar eru þó sammála um að fá niðurstöðu á næstu dögum um hvort verkefnið fari í gang eða hætt verði við það. Hvorugur aðili fæst þó til að staðfesta að málið sé í þessum hnút.

Magnús Bjarnason, framkvæmdastjóri markaðs- og viðskiptaþróunar hjá Landsvirkjun, segir það eitt að Landsvirkjun hafi unnið að því með Íslenska kísilfélaginu og Globe að leysa mál sem upp hefði komið og það væri augljóst að efnahagsástandið í heiminum hefði ekki orðið til þess að hjálpa þessu verkefni. Magnús bætti jafnframt við að þrátt fyrir þetta væru menn ennþá bjartsýnir á að ná til lands.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×