Borgin afþakkar risaeðlubein Borgarráð samþykkti í gær að afþakka hluta úr beinagrind af risaeðlu sem samtökin Leap Lab vildu gefa borginni. Með gjöfinni fylgir töluverður kostnaður. Innlent 12.6.2026 10:45
Stríðið í Úkraínu orðið lengra en fyrri heimsstyrjöldin Innrás Rússa í Úkraínu, sé hún talin hafa byrjað þann 24. febrúar 2022, hefur nú staðið yfir lengur en fyrri heimsstyrjöldin. Í gær hafði innrásin staðið yfir í 1.569 daga eða rúmlega fjögur ár og þrjá mánuði en ráðamenn í Rússlandi töldu upprunalega að Úkraína myndi falla í þeirra hendur á nokkrum dögum. Erlent 12.6.2026 10:32
Segja brottfararstöð ekki samrýmast Barnasáttmálanum Íslandsdeild Amnesty International telur nýsamþykkt lög um brottfararstöð áhyggjuefni fyrir mannréttindavernd hérlendis. Samtökin sendu frá sér yfirlýsingu varðandi samþykkt laganna í dag. Innlent 12.6.2026 10:29
Róbert leiðir vinnu hagræðingarhóps nýs meirihluta Borgarráð samþykkti á fundi sínum í gær að skipa stýrihóp um hagræðingu og stjórnkerfisbreytingar í borgarkerfinu. Róbert Ragnarsson, borgarfulltrúi Viðreisnar, verður formaður hópsins og á hann að skila tillögum jafnóðum og þær eru til. Vinnu hópsins á að vera lokið um mitt kjörtímabil, 2028. Innlent 12.6.2026 08:43
Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Í árslok 2025 var 2.651 barn á biðlista eftir þjónustu hjá Geðheilsumiðstöð barna. Í nýjum Talnabrunni embættis landlæknis kemur fram að meirihluti þeirra hafði þá beðið eftir þjónustu í meira en ár og um 11 prósent í meira en þrjú ár. Drengir voru almennt yngri en stúlkur á biðlista. Innlent 12.6.2026 08:11
Hæstiréttur bannar Alabama að taka menn af lífi með köfnunarefni Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur hafnað umleitan Alabama um að fá að taka fanga af lífi með köfnunarefni. Yfirvöldum í ríkinu hafði áður verið hafnað á tveimur lægri dómstigum, með þeim rökum að um væri að ræða brot gegn ákveðum stjórnarskrárinnar gegn grimmilegum og óvenjulegum refsingum. Erlent 12.6.2026 08:05
Malbika á Reykjanesbraut í kvöld Í kvöld, föstudagskvöldið 12. júní og aðfaranótt laugardags 13. júní, milli klukkan 21:00 og 07:00, verður unnið að malbikun á Reykjanesbraut í suðurátt á 1.100 metra kafla frá Arnarnesvegi. Innlent 12.6.2026 07:22
107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Árið 2024 voru skráðar 4.299 fæðingar á Íslandi, þar af 141 fæðing á Björkinni og Fæðingarheimili Reykjavíkur og 107 heimafæðingar. Þá er talið að sjö fæðingar hafi átt sér stað heima án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks. Innlent 12.6.2026 07:11
Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir hefur stefnt Eldi Smára Kristinssyni Ísidóri fyrir héraðsdóm vegna ummæla hans um Uglu. Hún segir málið prófstein á það hvað megi og megi ekki í opinberri umræðu, hún segist ítrekað hafa óttast um öryggi sitt vegna orðræðu sem farið hafi harðnandi upp á síðkastið. Innlent 12.6.2026 07:03
Möguleiki á að hiti fari yfir tuttugu stig í höfuðborginni Útlit er fyrir norðaustan og norðan fimm til þrettán metrum á sekúndu í dag. Það hefur verið rigning á köflum sunnan- og vestanlands í nótt, en þegar kemur fram á daginn á að létta til með hita 13 til 20 stig. Veður 12.6.2026 06:59
Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Enn og aftur fer tvennum sögum af því hvort Bandaríkjamenn og Íranir séu við það að undirrita friðarsamkomulag eða ekki. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í gær að samkomulag væri allt að því í höfn en utanríkisráðuneyti Íran dró það til baka og sagði enga niðurstöðu liggja fyrir. Erlent 12.6.2026 06:47
Eldar í grillum og kveikt í ruslagámi Viðbragðsaðilum bárust tvær tilkynningar í gærkvöldi um eld í grilli en í báðum tilvikum gekk greiðlega að slökkva og tjón var annað hvort ekkert eða minniháttar. Þá var tilkynnt um eld í ruslageymslu en þar leikur grunur á að um íkveikju hafi verið að ræða og er málið í rannsókn. Innlent 12.6.2026 06:26
Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Í suðaustanverðu Indlandshafi á um sjö kílómetra dýpi hafa vísindamenn uppgötvað eitthvað sem lýst er sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“. Þar hafa þegar verið taldar hátt í fimm hundruð hvalaleifar á svæði sem teygir sig yfir um tólf hundruð kílómetra. Erlent 11.6.2026 23:17
Vilja lækka sakhæfisaldur um eitt ár í stað tveggja Sænska ríkisstjórnin hefur mildað áform sín og hefur fallið frá tillögu sinni um að lækka sakhæfisaldur niður í þrettán ár. Þess í stað leggur ríkisstjórnin til að lækka sakhæfisaldur niður í fjórtán ár. Erlent 11.6.2026 22:50
Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa farið fram á að ríkisstjórnin endurreikni fjármálaáætlunina þar sem forsendur hennar séu brostnar. Starfsáætlun þingsins var kippt úr sambandi í dag þar sem enn á eftir að ljúka stórum málum. Innlent 11.6.2026 21:43
Eldur í Árbænum Eldur kviknaði í íbúð við Selásbraut í Árbæ í Reykjavík en reyndist hann minni en upphaflega var gert ráð fyrir. Búið er að slökkva eldinn. Innlent 11.6.2026 21:15
Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofning innan flokksins Guðmundur Andri telur ekki rétt að kalla ágreining sem undanfarið hefur myndast innan raða Samfylkingarfólks klofning. Hann segist þó halda að nýleg stefnubreyting, kröpp hægri beygja, hafi ekki verið nægilega mikið rædd á vettvangi flokksins. Guðmundur er einn þeirra sem skrifuðu undir skoðanapistil þar sem hópur félagsmanna Samfylkingarinnar og óflokksbundins jafnaðarfólks mótmælir brottfararstöð ríkisstjórnarinnar. Innlent 11.6.2026 20:57
Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Formaður Eflingar segir áhugaleysi þingmanna um að breyta biðlaunareglum vera sorglegt. Það sé ósanngjarnt að þingmenn fái greiddar milljónir fyrir að segja upp í vinnunni. Innlent 11.6.2026 19:25
Aflýsir kröftugu árásunum Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur aflýst fyrirhugðum árásum á Íran sem áttu að fara fram í kvöld. Erlent 11.6.2026 18:46
Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Eldfim staða er uppi í Mið-Austurlöndum. Bandaríkjaforseti boðar harðar árásir á Íran í nótt og hernám eyju á Persalóa. Ráðamenn segja stigmögnun átakanna verulegt áhyggjuefni og Hormússundi hefur verið lokað, en það getur haft gríðarleg áhrif á efnahagslífið um allan heim. Innlent 11.6.2026 18:12
Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Ingólfur Samúelsson var meðlimur í sex manna hópi sem vísað var út úr flugvél Transavia í morgun vegna ölvunar. Hann neitar því að einhver í hópnum hafi verið drukkinn og hyggst leita réttar síns. Innlent 11.6.2026 18:07
Hafnar kreddum um verðbólguna Samsetning verðbólgu hérlendis er flókin og orsakir hennar ekki svo einfaldar að fyrst komi launahækkanir og í kjölfarið verðbólga. Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir verkalýðshreyfinguna óska eftir umræðu sem byggir ekki á kreddum heldur gögnum. Innlent 11.6.2026 17:29
Stefnir í uppbótartíma Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, segir ólíklegt að þinglok verði á morgun eins og til stóð samkvæmt starfsáætlun Alþingis. Hún vill ekki fullyrða hvort náist að samþykkja samgönguáætlun á næstu dögum. Innlent 11.6.2026 16:32
Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Yfirvöld í Bretlandi eru þau fyrstu í Evrópu til að samþykkja sölu þyngdarlosunarlyfsins Wegovy í pilluformi. Lyfið er framleitt af danska fyrirtækinu Novo Nordisk en hingað til hafa neytendur þurft að sprauta því í sig. Erlent 11.6.2026 16:24