Innlent

Telja það nánast öruggt að Hanna Birna bjóði sig fram

Höskuldur Kári Scram skrifar
Harður formannsslagur geisar nú bak við tjöldin í Sjálfstæðisflokknum milli stuðningsmanna Hönnu Birnu Kristjánsdóttur og Bjarna Benediktssonar. Landsfundur flokksins hefst eftir tæpar þrjár vikur en Hanna Birna er enn ekki búin að lýsa formlega yfir framboði.

Hanna Birna hefur fengið afgerandi stuðning í skoðakönnunum sem hafa verið birtar en þessar kannanir hafa hins vegar lítið að segja þegar að kemur að formannskjörinu sjálfu.

Aðeins þeir sem sitja landsfund flokksins hafa atkvæðisrétt en þeir eru um sextán hundruð talsins.

Yfir áttatíu prósent landsfundarfulltrúa eru kosnir af svæðisfélögum og þar hefur geisað harður slagur milli annars vegar stuðningsmanna Bjarna Benediktssonar og hins vegar stuðningsmanna Hönnu Birnu um laus sæti. Þar virðast stuðningsmenn Hönnu Birnu eiga á brattan að sækja.

Á fundi fulltrúarráðs sjálfstæðisfélaga í Garðabæ í síðustu viku var til að mynda lögð fram tilllaga um að eiginkona Bjarna, Þóra Baldvinsdóttir, myndi víkja sem landsfundarfulltrúi en sú tillaga var felld.

Stuðningsmenn Bjarna telja það nánast öruggt að Hanna Birna taki slaginn þrátt fyrir að hún sé ekki búin að lýsa því yfir formlega. Stuðningsmenn beggja aðila hafa verið duglegir að hringja í áhrifafólk innan flokksins til að kanna mögulegan stuðning á komandi landsfundi.

Hanna Birna nýtur stuðnings manna á borð við Kjartans Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóra flokksins og Björns Bjarnasonar fyrrverandi ráðherra. Bakland Bjarna þykir hins vegar sterkt og þá hefur það aðeins einu sinni gerst í rúmlega áttatíu ára sögu flokksins að sitjandi formaður hefur tapað í formannskjöri.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×