Innlent

Þingvallastjórn vill endurskoða landbúnaðarkerfi og lífeyriskjör þingmanna

Áhersla verður lögð á að tryggja stöðugleika í íslenska efnahagslífinu og farið verður í endurskoðun á landbúnaðarkerfinu ásamt því að lengja fæðingarorlof í áföngum. Þetta kom fram á fréttamannafundi á Þingvöllum í morgun þar sem formenn Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins fóru yfir stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar.

Þau hófu fundinn á því að rita undir stefnuyfirlýsinguna og greindu svo frá helstu efnisatriðum hennar. „Með þessari undirritun er þetta orðin Þingvallastjórn," sagði Geir H. Haard forsætisráðherra.

Tryggja á stöðugleika í efnahagslífi

Flokkarnir hafa einsett sér að mynda frjálslynda umbótastjórn sem hafi kröftugt efnahagslíf að markmiði og öflugt velferðarkerfi. Áhersla verði á jafnrétti í reynd og jöfnuð. Leita á eftir sátt í landinu í efnahagsmálum og stóriðjumálum.

Áhersla verður lögð á að Ísland verði áfram í fararbroddi þeirra landa þar sem lífskjörin eru best. Brýnasta verkefnið er að tryggja stöðugleika í efnahagslífinu bæði fyrir heimili landsins og atvinnulíf.

Ríkisstjórnin mun styðja menningu og listir sem aðdráttarafl fyrir landið. Stutt verður vel við íslensk fyrirtæki í alþjóðlegri samkeppni og stefnt að því að styrkja hátæknaiðnað. Þá á að efla Fjármálaeftirlitið svo íslenski markaðurinn njóti góðs traust.

Endurskoða landbúnaðarkerfi og lækka skatta

Unnið verður að endurskoðun landbúnaðarkerfisinsmeð það fyrir augum að auka frelsi, bæta stöðu bænda og lækka verð til neytenda.

Stefnt er að því að lækka skatta á fyrirtæki og einstaklinga og afnema stimpilgjöld. Þá á að efla upplýsingatækni og verkaskipting ráðuneyta verður endurskipulög. Þá á að setja opinberum embættismönnum siðareglur. Þá verður tekjuskipting ríkis og sveitarfélaga endurskoðuð með það að markmiði styrkja tekjustofn sveitarfélaga. Þá verða eftirlaunakjör alþingismanna og ráðherra endurskoðuð og meira samræmi komið á í lífeyrismálum ráðamanna og almennings.

 

Ingirbjörg Sólrún og Geir á hlaði bústaðar fosætisráðherra á Þingvöllum eftir að þau kynntu stefnumál nýrrar ríkisstjórnar.MYND/HT

Heildstæð stefna í málefnum barna og eyðing biðlista

Móta á heildstæða stefnu í málefnum barna og þá á að auka stuðning við langveik börn og börn með geðraskanir. Unnið verði að því að eyða biðlistum þar að lútandi. Fæðingarorlof verður lengt í áföngum. Enn fremur á að veita gjaldfrjálst eftirlit með tönnum barna og auka niðurgreiðslur á tannviðgerðum. Jafnframt á að hækka barnabætur til þeirra sem hafa lágar tekjur og nemendur í framhaldsskólum fá stuðning til kaupa á námsgögnum.

 

Stefnt verður að því tryggja 25 þúsund króna lágmark í lífeyrisgreiðslur til allra og minnka skerðingarhlutföll í almannatryggingarkerfinu niður í 35 prósent. Enn fremur á að einfalda almannatryggingakerfið og hraða uppbyggingu 400 hjúkrunarrýma fyrir aldraða og fjölga einbýlum. Þá á að gera þjónustu við aldraða meira einstaklingsmiðaða.

Launamunur minnkaður um helming á kjörtímabilinu

Í jafnréttismálaum verður stefnt að því að minnka kynbundinn launamun hjá ríkinu um helming á kjörtímabilinu. Auk þess á að vinna að því með aðilum vinnumarkaðarins að minnka launamuninn á almennum vinnumarkaði. Þá er stefnt að því að jafna stöðu kvenna og karla í nefndum og stjórnunarstöðum á vegum ríkisins.

Þá á að leggja aukna áherslu á list- og verkmenntun á öllum skólastigum og draga úr miðsstýringu í skólakerfinu. Þá verður leitað leiða til að lækka lyfjaverð. Þá er gert ráð fyrir fjölbreytilegri rekstrarformum í heilbrigðisþjónustu, m.a. með útboðum og þjónustusamningum, en jafnframt á að tryggja allir hafi jafnan aðgang að henni, óháð efnahag.

Stórátak í samgöngumálum

Ráðast á í stórátak í samgöngumálum og þá verður sérstök áhersla lögð á uppbyggingu samgangna á höfuðborgarsvæðinu. Þá verða skilgreind þau störf á vegum ríkisins sem hægt er að vinna án tillits til staðsetningar og þannig stuðlað að fjölgun starfa á landsbyggðinni.

Þá verður gerð skýr áætlun um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og enn fremur verður unnið að rammaáætlun um verndun og nýtingu náttúruauðlinda. Stefnt verður að því að ljúka vinnu við rammaáætlun fyrir lok árs 2009 og leggja niðurstöðuna fyrir Alþingi til formlegrar afgreiðslu. Þar til sú niðurstaða er fengin verði ekki farið inn á óröskuð svæði án samþykkis Alþingis, nema rannsóknar- eða nýtingarleyfi liggi fyrir. Þá verður friðland Þjórsárvera stækkað þannig að það nái yfir hið sérstaka votlendi veranna.

Í innflytjendamálum verður lögð áhersla að bæta aðgengi innflytjenda að íslensku samfélagi og að koma í veg fyrir félagsleg undirboð á íslenskum vinnumarkaði.

Samráðsvettvangi um Evrópumál komið á

Í Evrópumálum verður komið á föstum samráðsvettvangi stjórnmálaflokka sem fylgist með þróun mála í Evrópu og leggi mat á breytingar út frá hagsmunum Íslendinga. Nefndin á að hafa samráð við innlenda sérfræðinga og hagsmunaaðila eftir þörfum. Ekkert er sagt um lista hinna staðföstu þjóða en hins vegar að ný ríkisstjórn harmi stríðsreksturinn í Írak og vilji leggja sín lóð á vogarskálar friðar í Írak og Miðausturlöndum, m.a. með þátttöku í mannúðar- og uppbyggingarstarfi.

Áhersla lögð á að leiða til lykta deilur um auðlindaákvæði í stjórnarskrá.

Ætlunin er að kalla Alþingi saman í næstu viku þar sem jafnvel verða tekin fyrir tvö til þrjú mál sem meðal annars lúta að breyttri verkaskiptingu ráðuneyta.

 

 

Stefnuyfirlýsingu Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar má nálgast hér að neðan.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×