Innlent

Steingrímur: Björgólfur Thor þótti fínn pappír

Steingrímur J. Sigfússon.
Steingrímur J. Sigfússon. Mynd/Pjetur
„Ég tel að verkefnið sé gott og það yrði synd ef það strandaði á þessum þætti en ég er samt ekki að gera lítið úr þeim hluta," segir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, aðspurður um aðkomu félags í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar að uppbyggingu gagnavers á Suðurnesjum.

Fyrirtækið sem um ræðir er Verne Holding, en það er að hluta í eigu Björgólfs Thors. Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, hefur verið gagnrýnd fyrir að gera samning sem felur í sér skattaívilnanir fyrir fyrirtæki í hans eigu.

Steingrímur var gestur í þætti Sigurjóns M. Egilssonar á Bylgjunni í morgun. Hann sagði fjármálaráðuneytið hafa komið að skattahluta samningsins sem að mati Steingríms er mun betri en þeir fjárfestingarsamningar sem voru gerðir við álverin á sínum tíma. Þessi samningur sé afmarkaðri í tíma, ívilnanirnar hóflegri og fyrirtækið komi miklu fyrr en álverin inn í venjulegt skattaumhverfi.

Steingrímur benti á að í haust hafi verið barið á fjármálaráðuneytinu fyrir að klára ekki að gera þennan samning út af atvinnuástandinu á Suðurnesjum. Um væri að ræða græna atvinnustarfsemi og sölu á orku. Steingrímur sagði að þetta hefði skyndilega breyst síðustu daga og áherslan og umræðan færst yfir á eignarhaldið.

„Menn verða þá að spyrja sig af því hvort við ætlum að stranda öllu verkefninu vegna þess að Björgólfur Thor lagði af stað með það fyrir einhverjum tveimur til þremur árum síðan. Þá þótti hann fínn pappír og menn voru voðalega ánægðir með þetta allt saman. Nú er andinn breyttur," sagði ráðherrann.

Steingrímur sagði að skoða þurfi málið vel. Fyrir liggi að eignarhlutur Björgólfs Thor komi til með minnka með innkomu nýrra eigenda. Þá benti Steingrímur á að Björgólfur Thor hafi ekki verið ákærður fyrir neitt. „Hann er í hópi útrásargaura og bankakarla sem hafa farið illa að ráði sínu og bakað okkar tjón. Við skulum takast á við það á forsendum réttarríkisins."

Fram kom í þættinum að Steingrímur bindur miklar vonir við skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.


Tengdar fréttir

Iðnaðarráðherra vinnur í samræmi við lög

Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, Jón Steindór Valdimarsson, segir það vera sérkennilegt hversu margir reyni nú að gera aðkomu Verne Holding að uppbyggingu gagnavers á Suðurnesjum tortryggilega. „Grátlegt er að sjá í hvaða farveg umræða um málið er að falla,“ segir framkvæmdastjórinn. Þetta kemur fram á heimasíðu samtakanna.

Björgólfur Thor stígi til hliðar

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, vill að Björgólfur Thor Björgólfsson stígi til hliðar þegar kemur að uppbyggingu Verne Holding á gagnaveri á Suðurnesjum.

Eignarhlutur Björgólfs Thors verði þynntur út

„Það sem þetta verkefni snýst um er einfaldlega þetta. Ætlum við að láta alla fjárfestinguna fara forgörðum út af fortíð og sögu eins minnihlutaeigenda í þessu fyrirtæki eða ætlum við að stuðla að því að það geti gerst að það komi nýtt fjarmagn inn í þetta verkefni og að þessi aðili sem hér er um rætt verði þynntur út?" Þetta sagði Katrín Júlíusdóttir í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag.

Þingmenn ekki lögsóttir vegna orða sinna

Það er ómögulegt að höfða mál gegn þingmanni vegna ummæla hans í þinginu nema að þingið gefi sérstakt leyfi til þess að undangenginni atkvæðagreiðslu.

Birgitta: Blaut tuska framan í almenning

Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, segist hafa fengið jákvæð viðbrögð við máli sínu á Alþingi í morgun. Þar lét þung orð falla þegar að hún spurði iðnaðarráðherra hvort hún teldi að Björgólfur Thor Björgólfsson ætti ekki að skila þýfinu sem hvarf af Icesave reikningunum sem hann bæri beina ábyrgð á. Birgitta var að spyrja ráðherra um lagafrumvarp um gagnaver á Vaðlaheiði sem lagt fram á þingi í fyrradag.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×