Tíska og hönnun

Menningar­lífið iðar og HönnunarMars hefst á morgun

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Það er gjarnan líf og fjör á opnun HönnunarMars.
Það er gjarnan líf og fjör á opnun HönnunarMars. Aldís Pálsdóttir

HönnunarMars hefst með glimmeri, pompi og prakt á morgun við hátíðlega athöfn í Hafnarhúsinu klukkan 17:00. Menningarunnendur geta sótt fjöldann allan af viðburðum á næstu dögum og stendur hátíðin fram á sunnudag. 

Í ár er að finna á dagskrá yfir 100 sýningar, 200 viðburði og eru þátttakendur hátt í 400 talsins.

„Í opnunarhófinu verður tóninn settur fyrir hátíðina framundan, sem í ár býður gesti velkomna í sirkus. Sirkusstemmingin verður því alltumlykjandi með óvæntum uppákomum, stuðtónlist frá FM Belfast DJ setti, glimmeri og gleði.

Hittumst, skálum og marserum svo saman á opnanir og sýningar sem hefjast strax í kjölfarið út um alla borg,“ segir í tilkynningu frá HönnunarMars en dagskrána má nálgast hér


Tengdar fréttir

Hefur hannað fyrir Miley Cyrus og Erykah Badu

Textílhönnuðurinn Ýr Jóhannsdóttir eða Ýrúrarí hefur vakið mikla athygli víðs vegar um heiminn fyrir einstakar peysur sínar en hennar einkenni er að gefa gölluðum flíkum nýtt og flottara líf. Mynd af peysu Ýrar fór sem eldur um sinu um Internetið fyrir nokkrum árum og leiddi það meðal annars af sér viðskipti við Miley Cyrus og Erykah Badu og viðtal við Vogue. Blaðamaður ræddi við Ýr eða Ýrúrarí en hún verður með sýningu á HönnunarMars í ár.

Kemur beint frá París með vistvæna tískustrauma

„Markmið mitt er að geta fært reynsluna mína inn í framtíðina með von um betri og sjálfbærari leiðir til að búa til klæðnað,“ segir fata-og textílhönnuðurinn Ása Bríet Brattaberg. Hún hefur verið að gera öfluga hluti í tískuheiminum úti og segist með námi sínu og reynslu hafa aflað sér framúrskarandi tæknilegrar og skapandi þekkingar.

Ragga Gísla útskýrir gjörninginn

Ragga Gísla verður með alveg einstakan gjörning á Hönnunarmars. Og Hönnunarmars breiðir úr sér um höfuðborgarsvæðið dagana 24. til 28. apríl.

Hönnunar­Mars haldinn í apríl

Sextánda árið í röð mun HönnunarMars breiða úr sér um allt höfuðborgarsvæðið dagana 24. - 28. apríl 2024. Hátíðin hefur fest sig í sessi sem einn helsti menningarviðburður landsins. Þar fá fjölbreyttar og forvitnilegar sýningar sem og viðburðir að veita þátttakendum og gestum innblástur og innsýn í nýjar lausnir og skapandi hugmyndir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×