Veður

Að mestu létt­skýjað sunnan- og vestan­til

Atli Ísleifsson skrifar
Hiti á landinu verður á bilinu tvö til tólf stig.
Hiti á landinu verður á bilinu tvö til tólf stig. Vísir/Arnar

Veðurstofan gerir ráð fyrir að í dag verði norðan og norðaustanátt fimm til tíu metrar á sekúndu en á Austfjörðum verði tíu til fimmtán metrar á sekúndu.

Í hugleiðingum veðurfræðings segir að það verði skýjað og dálítil súld eða snjómugga norðan- og norðaustanlands en að mestu léttskýjað sunnan- og vestantil.

Hiti verður á bilinu tvö til tólf stig, hlýjast sunnanlands en víða næturfrost.

„Í nótt lægir og á morgun verður fremur hæg breytileg átt á landinu og bjart með köflum. Seinnipartinn fer svo að blása af suðri vestanlands, 3-8 m/s og dálítil væta annað kvöld,“ segir á vef Veðurstofunnar.

Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag og fimmtudag: Suðlæg eða breytileg átt 3-8 m/s. Skýjað með köflum og dálítil rigning vestanlands, en að mestu bjart um austanvert landið. Hiti 1 til 9 stig.

Á föstudag: Suðaustlæg átt 5-13 m/s og rigning eða súld. Þurrt norðaustantil en rigning eða slydda þar undir kvöld. Hiti 2 til 9 stig.

Á laugardag: Suðaustlæg eða breytileg átt og rigning eða súld, einkum sunnantil. Hiti 6 til 11 stig.

Á sunnudag: Breytileg átt og dálítil rigning, en úrkomulítið á Norðurlandi. Áfram milt í veðri.

Á mánudag: Útlit fyrir norðlæg átt og rigning með köflum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×