Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Jakob Bjarnar skrifar 14. maí 2025 10:54 Ágúst Bent segir liggja fyrir að það hafi ekki verið mikið að gera, fyrir sig í auglýsingageiranum, eftir að hann kýldi stjórnarmann IMARK á hátíðinni. vísir/vilhelm Hljómsveitin XXX Rottweiler hundar fagna 25 ára starfsafmæli sínu í Laugardalshöll 24. maí og hefur Erpur Eyvindarson, forsprakki sveitarinnar, verið í hverju hlaðvarpsviðtalinu á fætur öðru og lofar veislu.
Ágúst Bent Sigbergsson var hins vegar í spjalli við Þóru Tómasdóttur á RÚV í þættinum Þetta helst en þar var rætt meðal annars það þegar félagar hans í rappsveitinni kölluðu hann á sinn fund og voru með inngrip eða það sem á ensku kallast „intervention“. Þá ræddi Ágúst Bent um skerta starfsmöguleika sína í auglýsingagerð eftir að hann réðst á formann IMARK og hlaut dóm fyrir líkamsárás fyrir. Ágúst Bent segir að þegar þeir byrjuðu hafi enginn rappari verið eldri en 25 ára, það hafi verið óheyrt, en þeir séu nú enn að og hann telur sig eiga sitt besta eftir enn. Tónlist Rottweiler hefur verið tengd neyslu, fylleríi og sukki og svínaríi, og Ágúst Bent spyr hvað hann sé ef hann er ekki þessi „djammrappari“ sem hann hefur verið. „Skreyta sig þessum djammfjöðrum“. En hann hefur nú verið edrú í mörg ár. Erpur Eyvindarson af öllum með „intervention“ Ágúst Bent segist hafa drukkið illa og hefði átt að hætta miklu fyrr. „Besti tíminn til að gróðursetja tré var fyrir tíu árum. Næst besti tíminn er í dag.“ Ágúst Bent segist aldrei hafa verið glæpahundur þó hann hafi verið í neyslu. Og mest sé hann nú að reyna að skemmta þeim sem heima sitji og úti í sal. Og ekki sé hægt að fjalla um skemmtanalífið án þess að imprað sé á dekkri hliðum. Og það hafi hann gert. Meira að segja lagið sem hann gerði með Steinda Jr., Það er djamm í kvöld, fjallar um mann sem hefur misst stjórn á sinni neyslu. XXX Rotweilerhundar. Ágúst Bent segir frá því að þeir félagar hans í hljómsveitinni, Erpur Eyvindarson og Lúðvík Páll Lúðvíksson eða Lúlli hlutuðust til um áfengisneyslu hans eða tóku hann í svokallað inngrip eða intervention. „Það var þannig að ég var boðaður á Rottweiler-æfingu af Lúlla og Erpi. Og var tekinn í „intervention“ (inngrip). Pælið í því, af Erpi Eyvindarsyni af öllum? Hann setur manni stólinn fyrir dyrnar og segir: Jæja, kallinn!“ Ágúst Bent segir ballið hafa verið búið. Það sé alltaf hægt að finna sér einhverja til að djamma með en þau samskipti snúist ekki um neitt annað en neysluna sjálfa. Og þá sé nánast sjálfhætt. Líkamsárásin átti eftir að draga dilk á eftir sér Þau Þóra ræða um dóm fyrir líkamsárás sem Ágúst Bent hlaut. „Ég lít ekki á mig sem skapstóran mann. Þó maður geti ekki kennt áfengi og neyslu um allt. Þetta er eitthvað sem maður sér eftir og hefur dregið mikinn dilk á eftir sér.“ Ágúst Bent fer ekki í felur með það að dómurinn og atvikið hafi haft áhrif á ýmis störf, sambönd og fjölskyldu en lífið haldi bara áfram. „Fólk hringir ekki í þig til og lætur þig vita að þú hafir komið til greina í verkefni og það hætt við. En ég er sjálfstætt starfandi leikstjóri, gerði sjónvarpsþætti og auglýsingar. Líkamsárásin sem ég var dæmdur fyrir gerðist á ÍMARK-verðlaunaafhendingunni. Þetta gerist í eftirpartíi á verðlaunaafhendingunni. Og þangað er ég kominn til að kynna mig sem auglýsingaleikstjóra fyrir bransanum. Og ég er búinn að vera þar í tvær mínútur þegar ég er búinn að kýla formann ÍMARK!“ Ágúst Bent segir ekki að mikið hafi verið að gera hjá sér í auglýsingabransanum eftir þetta. En þar hafi þó landið risið með edrúmennskunni.
Tónlist Tónleikar á Íslandi Fíkn Áfengi Ástin og lífið Mest lesið Fagnarlæti yfirgnæfðu baulið en óvíst hvaðan þau komu Lífið Baráttan um jólagestina hafin Lífið Nýtt lag frá VÆB-bræðrum: „Bíðið bara, það verður epic!“ Tónlist Svona verður röð laganna á laugardaginn Lífið Einhleypir auglýstir á óhefðbundnum stefnumótaviðburði Lífið Einhleypir þokkasveinar Lífið Segist ástæða þess að Taylor Swift sé ekki lengur „heit“ Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Koníakstofa á þakinu og stórbrotið útsýni Lífið „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikið sorg“ Lífið Fleiri fréttir Fagnarlæti yfirgnæfðu baulið en óvíst hvaðan þau komu Baráttan um jólagestina hafin Börn í Laugardal fögnuðu fjölbreytileikanum í árlegri gleðigöngu Einhleypir auglýstir á óhefðbundnum stefnumótaviðburði Segist ástæða þess að Taylor Swift sé ekki lengur „heit“ Þórhildur greinir frá kyninu Bieber segist ekki á meðal þeirra sem Diddy braut á Koníakstofa á þakinu og stórbrotið útsýni Vinsælir í Basel en hversu hátt ná þeir? Herra Hnetusmjör í aðalhlutverki hjá Laufeyju Framtíðin óljós hjá Sigrúnu Ósk Einhleypir þokkasveinar Svona verður röð laganna á laugardaginn Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Þessi tíu lög komust í úrslit VÆB bræður á forsíðu BBC „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikið sorg“ Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið Sjá meira