Innlent

Í gæsluvarðhaldi til fimmtudags vegna Skagastrandarárásar

Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur úrskurðað um gæsluvarðhald yfir tveimur ungum mönnum sem réðust inn til afa annars þeirra á Skagaströnd á sunnudag og gengu í skrokk á honum. Þeir verða í varðhaldi til fimmtudags og féllst dómari því ekki á kröfu lögreglunnar um vikulangt varðhald yfir þeim.

Málið tengist kynferðisbroti sem afinn er grunaður um gegn öðru barnabarni sínu. Þau brot voru kærð til lögreglu og send til ríkissaksóknara fyrr í þessum mánuði.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×