Íslenski boltinn

KR búið að samþykkja tilboð í Skúla Jón | Hannes fer til Brann

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Skúli Jón.
Skúli Jón.
Norska liðið Sogndal hefur svarað gagntilboði KR í varnarmanninn Skúla Jón Friðgeirsson. Það virðist vera á öðrum nótum en upprunalega tilboðið því KR hefur samþykkt boð þeirra og gefið félaginu leyfi til þess að ræða við leikmanninn.

Sogndal sendi KR upprunalega lánstilboð sem Kristinn Kjærnested, formaður knattspyrnudeildar KR, lýsti sem brandara.

KR svaraði því með gagntilboði og nú nokkrum dögum síðar svaraði norska liðið með almennilegu tilboði. Nú þarf liðið að sannfæra leikmanninn um að Sogndal sé rétti staðurinn fyrir sig.

KR-ingar hafa einnig fengið grænt ljóst frá KSÍ um að markverðinum Hannesi Þór Halldórssyni sé leyfilegt að skipta til Noregs og svo aftur yfir í KR í lok næsta mánaðar.

Hann fer því nú í mánaðarlán til norska félagsins Brann og er verið að leggja lokahönd á pappírsvinnuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×