Innlent

Rúmlega 400 konur leituðu til Kvennaathvarfsins

Sigþrúður Guðmundsdóttir er framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins.
Sigþrúður Guðmundsdóttir er framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins.
Á nýliðnu ári dvöldu 200 gestir, konur og börn, í Kvennaathvarfinu í allt frá einum degi upp í í 213 daga, samkvæmt tölum frá Kvennaathvarfinu. Það vakti sérstaka athygli starfsmanna hve mörg börn dvöldu í athvarfinu, en þau voru 87 og dvöldu þar í að meðaltali 24 daga. Íbúafjöldi fór upp í 23 þegar mest lét en að meðaltali dvöldu 6 konur og 6 börn í athvarfinu á degi hverjum.

Að auki komu 211 konur í eitt eða fleiri ráðgjafar- og stuðningsviðtöl á árinu og þrír sjálfshjálparhópar voru starfræktir. Sími athvarfsins var opinn allan sólarhringinn sem endranær, segir í tilkynningu frá Kvennaathvarfinu.

Konurnar 334 sem komu í athvarfið á árinu voru á aldrinum 15-77 ára en ofbeldismennirnir sem stuðluðu að veru þeirra á aldrinum 15-89 ára. Yngsta barnið var nokkurra vikna gamalt en það elsta 17 ára.

Á árinu komst á sú nýbreytni að nú fá börnin í athvarfinu þjónustu sérfræðings á vegum tilraunaverkefnis í samvinnu Barnaverndarstofu, Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og barnaverndar sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Það er liður í að bæta þjónustu við börn í athvarfinu og draga úr áhrifum ofbeldisins í lífi þeirra.

Meirihluti kvennanna íslenskur að uppruna

66% kvenna sem komu í athvarfið á árinu eru íslenskar að uppruna. Meirihluti dvalarkvenna er þó að erlendum uppruna, eða 56% sem skýrist líklega af því að þær hafa í færri hús að venda heldur en íslensku konurnar þegar þær yfirgefa heimili sín. Reikna má með að sömu ástæður liggi að baki þess að erlendu konurnar dvelja að jafnaði lengur í athvarfinu en íslenskar konur. Meirihluti ofbeldismannanna, eða rúm 80%, eru Íslendingar.

Um 40% kvenna fóru í óbreyttar aðstæður

Óvenju hátt hlutfall kvenna fór aftur til ofbeldsmannsins en talið er að 40% dvalarkvenna hafi farið heim í óbreyttar aðstæður. Að sama skapi fóru fáar konur, eða 6% dvalarkvenna heim í breyttar aðstæður þar sem ofbeldismaðurinn er fluttur að heiman eða að öðru leyti hægt að reikna með að ástandið á heimilinu hafi batnað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×