Fastir pennar

Fréttamynd

Af náttúruvernd og orkufrekju

Talsverð umræða hefur farið fram í fjölmiðlum upp á síðkastið um það sem ritstjóri Fréttablaðsins kallar í leiðara 7. júlí sl. hagsmunaáreksturinn milli orkufreks iðnaðar og náttúruverndar.

Fastir pennar
Fréttamynd

Liðsandinn smitar

Þeir sem þekkja til í Þýzkalandi hafa rekið upp stór augu við að sjá myndirnar af svart-rauð-gula fánahafinu, af landsliðsmönnum raunverulega að syngja þýzka þjóðsönginn og almennt af þeirri fölskvalausu gleði sem ríkir þessa dagana í gestgjafalandi heimsmeistaramótsins í knattspyrnu.

Fastir pennar
Fréttamynd

Viðleitni til að bæta ímynd

Í höfuðborgum Habsborgaraveldisins gamla, Vín og Búdapest, er umferðin komin aftur í samt lag eftir umsáturs­ástandið sem skapaðist þegar tiginn gestur vestan frá Washington drap þar niður fæti í síðustu viku.

Fastir pennar
Fréttamynd

Að skemmta andskotum sínum

Til eru tvenns konar stjórnmálamenn, þeir sem með verkum sínum virðast telja að stjórnmálin og allt sem gerist á þeim vettvangi snúist einmitt um þá sjálfa og svo hinir sem líta á stjórnmálin sem leið til að hrinda í framkvæmd hugmyndum og hugsjón.

Fastir pennar
Fréttamynd

Chez Styrmir - vinsæll veitingastaður

Af alkunnri hógværð taldi Staksteinahöfundur slíkt ekki óeðlilegt, þar sem "á ritstjórn Morgunblaðsins hefur verið til staðar meiri þekking á og vitneskja um varnarmál þjóðarinnar heldur en hjá Ingibjörgu Sólrúnu, Merði Árnasyni og forverum þeirra."

Fastir pennar
Fréttamynd

Vandasamt verkefni

Fyrr eða síðar mun Seðlabankinn þurfa að lækka vexti aftur. Spurningin er einungis hvenær það verður skynsamlegra heldur en að halda áfram að hækka þá.

Fastir pennar
Fréttamynd

23. apríl 2001

Á þeim fimm árum sem útgáfa Fréttablaðsins spannar hefur ýmislegt breyst á íslenskum dagblaðamarkaði. Sumar þær breytingar má leiða líkur að að séu tilkomnar vegna áhrifa frá Fréttablaðinu, beint eða óbeint.

Fastir pennar
Fréttamynd

Græðum landið grænum skógi

Slíkt verkefni vinnur ekki aðeins gegn mengun af völdum bifreiða og verksmiðja heldur einnig gegn mengun hugans af streitu og óróleika. Það er nefnilega róandi og heilandi að fylgjast með trjánum vaxa. Þau eru ekki að flýta sér en ná þó ótrúlegum árangri og miklu meiri árangri en við mannfólkið.

Fastir pennar
Fréttamynd

Dvergurinn og daman

Korter-í-þrjú-gæinn Geir hugnast okkur ekki. Að minnsta kosti finnst okkur þetta ekki rétta hugarfarið þegar menn eru á leið í "samningaviðræður" um framtíð landvarna.

Fastir pennar
Fréttamynd

Svartur blettur á allsnægtarsamfélaginu

Þessum konum eru boðnar allt niður í 110 þúsund krónur á mánuði fyrir störf sín, laun sem eru víðsfjarri því að geta talist mannsæmandi. Hvert og eitt okkar sem erum á miðjum aldri vill vitanlega aðeins það besta fyrir foreldra okkar. Það gildir áreiðanlega líka um þá sem halda um sameiginlega pyngju okkar allra. Það er því löngu tímabært að kjörnir fulltrúar okkar taki ábyrgð á þeirri hneisu sem laun umönnunarstarfsmanna eru.

Fastir pennar
Fréttamynd

Kertin dýrari en kakan

Vinafólk sem býr í Danmörku kom í mat til okkar um daginn. Spurð fregna af gömlu nýlenduherrunum sögðu þau að danskir kunningjar þeirra á okkar aldri séu mjög uppteknir af lífeyrissjóðsmálum. Varla hafi tappinn verði tekinn af Tuborgnum þegar talið berst að lífeyrissjóðum, í hvaða lífeyrissjóð eigi að borga, hvar sé ávöxtun best og hvaða sjóður sé minnst líklegur til að stinga af með peningana til Brasilíu.

Fastir pennar
Fréttamynd

Birtingarmynd föðurveldisins

Þarf frekari sannanir fyrir því að stjórnmálamenn, hvar í flokki sem þeir standa, líta í raun og veru á þjóðina sem "makróorganisma", risavaxinn þjóðarlíkama sem þarf stöðuga næringu í æð? Gleymum því ekki að Pétur Blöndal studdi byggingu Kárahnjúkavirkjunar, rétt eins og allir hinir stjórnlyndu stjórnarliðarnir.

Fastir pennar
Fréttamynd

Siglt eftir Pólstjörnunni

Háskóli Íslands á að taka upp skólagjöld fyrir nemendur í meistara- og doktorsnámi. Þannig getur skólinn sjálfur haft áhrif á það að tekjur hans séu nægar til að bjóða það nám sem stenst alþjóðlega samkeppni. Með slíkri gjaldtöku setur skólinn sjálfan sig undir þann aga að þurfa að bjóða nám sem stúdentar telja þess virði að borga fyrir. Það er ekki nóg að fá peninga, það þarf að ná árangri.

Fastir pennar
Fréttamynd

Mikilvægi Bandaríkjanna

Óvild í garð Bandaríkjanna er áberandi víða um Evrópu og auðvelt er að sjá ýmis merki um hana hér á landi. Væntanlegur viðskilnaður Varnarliðins verður örugglega olía á þann eld.

Fastir pennar
Fréttamynd

Vatn handa öllum

Umræðan um vatn á Alþingi var einungis birtingarmynd málefnasnauðrar stjórnarandstöðu og kátlegt að fylgjast með forystumönnum hennar berja sér á brjóst yfir árangrinum í þessu máli. En vatn er dauðans alvöru mál, fyrir þá sem hafa ekki aðgang að því.

Fastir pennar
Fréttamynd

Frelsið er forsenda mennskunnar

Með því að kalla sig "frjálshyggju" reynir íhaldsstefnan að takmarka frelsi okkar til að velja eitthvað annað en hana. Einokun á frelsishugtakinu getur aldrei orðið annað en tilraun til frelsisskerðingar.

Fastir pennar
Fréttamynd

Hnattvæðing - ekki sjálfgefin

Lífskjarabyltingin undanfarinn áratug og hálfan er til vitnis um að séu aðstæður réttar í hagkerfinu nýti einstaklingarnir tækifærin sem gefast, bæði heima og heiman. Alþjóðavæðing viðskiptalífsins er okkur því mjög mikilvæg, hagsmunir okkar krefjast frjálsra viðskipta á sem flestum sviðum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Draumur um Evru

Breytingar á gengi krónunar virðast ekki einungis hafa haft áhrif á framandi staði og myntir með skrítin nöfn. Eitthvað gáraðist líka vatnið norður í landi á Lómatjörn. Okkar annars ágæti iðnaðarráðherra taldi að skoða bæri þann möguleika að kasta íslensku krónunni og taka upp evru án þess að ganga í ESB.

Fastir pennar
Fréttamynd

"Því Maúmet gjörir þeim tál"

Þannig er til tvenns konar málfrelsi. Annað hefur náðst eftir töluverða þróun í sögu mannsandans og fyrir því þarf reglulega að berjast. Undanfarin ár hefur þetta brothætta málfrelsi - rétturinn til að gagnrýna eigin stjórnvöld - verið í töluverðri kreppu í þeim löndum þar sem það hefur hingað til staðið hvað styrkustum fótum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Þörf á stefnumörkun

Engum blöðum er um það að fletta, að þjónusta við aldraða er eitt af brýnustu og mikilvægustu verkefnum samtímans. Margt hefur verið vel gert á því sviði á umliðnum áratugum og sumt af mikilli reisn og framsýni. Þegar elliheimilið Grund var reist var það til að mynda ein glæsilegasta bygging sinnar tíðar í höfuðborginni.

Fastir pennar
Fréttamynd

Góðverk gerð sýnileg

Alls staðar í samfélaginu eru samborgarar okkar að láta gott af sér leiða með margvíslegum hætti, gera eilítið meira en borgaraleg skylda segir til um, eða jafnvel miklu meira. Markmið Samfélagsverðlauna Fréttablaðsins er að gera slík verk sýnileg.

Fastir pennar
Fréttamynd

Illugi í rússneskri rúllettu

Fyrir skömmu fjallaði Egill Helgason um loftslagsbreytingar í þætti sínum Silfri Egils og gestir hans voru Hjörleifur Guttormsson og Illugi Gunnarsson, fyrrverandi aðstoðarmaður utanríkisráðherra. Illugi gerði lítið úr ábyrgð mannkyns á þessari náttúruvá og lét eins og það væri ástæðulaust að minnka notkun olíu og kola.

Fastir pennar
Fréttamynd

Lítið skref vekur upp spurningu

Þrátt fyrir opnun hagkerfisins eru erlendar fjárfestingar í sjávarútvegi enn nokkrum takmörkunum háðar. Einar Kristinn Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, hefur nú kynnt áform um að taka lítið skref til opnunar fyrir erlenda fjárfestingu á þessu sviði með því að heimila útlendingum að eiga og reka fiskmarkaði hér á landi.

Fastir pennar
Fréttamynd

Aðkomumenn knýja dyra

Ef sáttmálar og viðskiptasamningar þjóðar okkar eru nægilega mikilvægir til að þurfa að hljóta samþykki þingsins til að öðlast gildi hlýtur það einnig að eiga við um ákvarðanir um að fela erlendum aðilum stjórn yfir eignum sem hafa með öryggi bandarísku þjóðarinnar að gera. Og þetta á sérstaklega við um þessar mundir, á þessari nýju óöld hryðjuverka.

Fastir pennar
Fréttamynd

Heilbrigðisvottur

Veiking krónunnar getur ekki komið nokkrum á óvart. Í reynd hafa menn búist við slíkum breytingum um allnokkurn tíma. Vaxandi viðskiptahalli hefur verið ótvíræð vísbending þar um. Að hluta til er viðskiptahallinn vottur um heilbrigði og grósku í efnahagslífinu; að svo miklu leyti, sem hann á rætur í fjárfestingu er skila mun auknum arði og meiri verðmætasköpun inn í þjóðarbúið.

Fastir pennar
Fréttamynd

Nýr tími kallar á nánari samskipti

Hvernig svo sem formlegum tengslum okkar við Evrópu verður hagað í framtíðinni er eitt ljóst: Evrópusamskiptin geta aðeins vaxið. Það er því afar brýnt að rækta meir en gert hefur verið til þessa samskipti við þau ríki í Evrópu þar sem við vitum, að hagsmunir og sjónarmið fara saman við okkar eða liggja þeim nærri.

Fastir pennar
Fréttamynd

Múslimar Evrópu einangraðir

Deilan um skopteikningarnar af Múhameð sem birtust í Jótlandspóstinum er túlkuð í fjölmiðlum sem menningarlegur árekstur á milli frjálslyndra Vesturlanda og múslimaheimsins sem afneitar hugmyndinni um tjáningarfrelsi. Til að halda fram þessari tilgátu fram þarf einkum tvennt að koma til: fáfræði og hræsni.

Fastir pennar
Fréttamynd

Hin nýju vísindi stjórnunar

Vísindi stjórnunar felast í því að afneita tilvist átaka og ólíkra hagsmuna. Stjórnandinn á að komast að "réttri" niðurstöðu án þess að velta vöngum yfir því fyrir hvern niðurstaðan sé rétt. Stjórnun felst í því að finna lausnir, ekki vangaveltum um eðli tilverunnar.

Fastir pennar
Fréttamynd

Engin moðsuða í Garðabæ

Því er það fagnaðarefni að fram komi listi með svo afdráttarlausum sérkennum. Þetta er algerlega prjállaus listi og verður það vonandi áfram svo að kjósendur fái nú einu sinni skýrar línur - hér er flokkur sem kemur nákvæmlega til dyranna eins og hann er klæddur: í jakkaföt með bindi; listi þar sem er engin kona, engin ung manneskja, engin gömul manneskja, engin fötluð manneskja, með öðrum orðum ekkert skrýtið fólk sem truflar bara ákvörðunartökuna með þvaðri um hluti sem koma málum ekkert við; bara miðaldra karlmenn, hið eðlilega kyn.

Fastir pennar