Innlent

Vatnsslagur Kópavogs og Reykjavíkur til dómstóla

Stígur Helgason skrifar
Ómar Stefánsson og Gunnar Birgisson vígðu sína eigin vatnsveitu í Vatnsendakrikum í nóvember 2007 eftir mikið þref við Reykjavíkurborg.
Ómar Stefánsson og Gunnar Birgisson vígðu sína eigin vatnsveitu í Vatnsendakrikum í nóvember 2007 eftir mikið þref við Reykjavíkurborg. Fréttablaðið/vilhelm
Reykjavíkurborg hefur stefnt Kópavogsbæ fyrir dóm til að fá aðgang að borholum á Vatnsendasvæðinu. Borgaryfirvöld saka Kópavogsbæ um að efna ekki samning frá 2007, sem gerði ráð fyrir að Kópavogsbær afsalaði sér landsvæði í Vatnsendakrikum til Reykjavíkurborgar gegn því að Kópavogsbær fengi að leggja veg og vatnsleiðslu um land Reykjavíkur.

„Kópavogsbær hefur ekki gefið út afsal fyrir því landi sem honum bar að gefa út afsal fyrir,“ segir Kristbjörg Stephensen borgarlögmaður.

„Reykjavíkurborg hefur efnt sinn hluta samningsins – þarna er komin vatnslögn og vegur og Kópavogsbær hefur hafið vatnstöku þarna en enn vantar að Kópavogsbær gefi út þetta afsal til Reykjavíkurborgar þannig að Orkuveitan geti þá nýtt þessar holur.“

Málið snýst um borholur sem Orkuveitan boraði árið 1991 í Vatnsendakrikum. Um miðjan síðasta áratug stóðu miklar deilur á milli sveitarfélaganna um það hvort Kópavogsbær mætti leiða vatn og leggja veg um land Reykjavíkur þegar bærinn áformaði að stofna sína eigin vatnsveitu.

Deilunum lauk með samningnum sem segir frá hér að framan; Kópavogsbær fékk leyfið gegn því að Reykjavík eignaðist landið í kringum borholurnar, sem Kópavogsbær tók eignarnámi með sátt árið 2007.

Kristbjörg Stephensen
Samningurinn alveg skýr

Kristbjörg segir bæjaryfirvöld í Kópavogi gefa þá skýringu á afstöðu sinni að þau vilji fyrst fara betur yfir það hvaða áhrif vatnstaka Reykvíkinga úr borholunum hefði á þeirra eigin vatnsveitu og tryggja að hún myndi ekki ganga á hagsmuni þeirra.

Hún segir þó að samningurinn sé alveg skýr.

„Þeim ber að afhenda þetta. Það er auðvitað alveg ljóst að það er enginn sem borar eftir vatni nema á grundvelli starfsleyfis frá Orkustofnun og það er þá hennar að ganga frá starfsleyfinu þannig að Orkuveitan verði ekki of frek til fjörsins. Það kemur þessu máli í rauninni ekkert við.“

Páll Magnússon, bæjarritari í Kópavogi og starfandi bæjarstjóri í fjarveru Ármanns Kr. Ólafsonar, segir bæjaryfirvöld ekkert vilja tjá sig um málið á þessu stigi. Það sama sögðu Rannveig Ásgeirsdóttir, formaður bæjarráðs, og varaformaðurinn Ómar Stefánsson.

Málinu var stefnt fyrir dóm á miðvikudaginn í síðustu viku og Kópavogsbær hefur fram yfir réttarhlé til að skila greinargerð í málinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×