Enski boltinn

Fórnaði Arsenal fyrir konu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Emmanuel Petit fagnar marki með þeim Nicolas Anelka og Dennis Bergkamp á 1997-98 tímabilinu.
Emmanuel Petit fagnar marki með þeim Nicolas Anelka og Dennis Bergkamp á 1997-98 tímabilinu. Getty/Mark Leech

Franski fótboltamaðurinn Emmanuel Petit sér mikið eftir því í dag að hafa yfirgefið Arsenal á sínum tíma.

Þessi fyrrum heims- og Evrópumeistari með franska landsliðinu vildi í raun ekki fara frá London en aðrir þættir í lífi hans réðu ákvörðun hans.

Petit var í risastóru hlutverki í fyrstu meistaraliðunum undir stjórn Arsene Wenger. Wenger þekkti hann frá Mónakó og fékk hann því til enska félagsins.

Petit spilaði með Arsenal frá 1997 til 2000 og var í aðalhlutverki í liðinu sem vann tvöfalt vorið 1998.

Petit mætti í hlaðvarpsþátt Stadium Astro á dögunum og sagði þá frá ástæðunni fyrir því að hann yfirgaf Arsenal árið 2000 þá þrítugur.

En af hverju fór hann frá Arsenal. „Vegna konu,“ svaraði Petit og leyndi ekki eftirsjá sinni.

Emmanuel Petit og Agathe De La Fontaine sem hann gitist árið 2000.Getty/Dave Benett

„Ég elskaði alltaf Barcelona og [Real] Madrid, tvö af stærstu félögum heims en ég hefði átt að vera áfram hjá Arsenal. Engin spurning,“ sagði Petit.

„Stundum er grasið ekki grænna annars staðar. Það hefði verið betra að spila áfram hér þar sem ég fékk mikla ást, var mjög ánægður og náði árangri. Af hverju þá að fara? Engin spurning að ég sé mikið eftir því,“ sagði Petit.

„Ef ég gæti farið aftur í tímann þá hefði ég örugglega tekið aðra ákvörðun,“ sagði Petit.

Hann segir að kona hafi viljað komast í heitara og sólríkara loftslag á Spáni og hann hafi látið undan pressunni.

Þegar Petit kom síðan aftur í ensku úrvalsdeildina ári síðar þá fór hann ekki aftur í Arsenal heldur til Chelsea þar sem hann lék síðustu þrjú tímabilin á ferlinum.

Petit giftist frönsku leikkonunni Agathe de La Fontaine árið 2000 en þau skildu árið 2002 eftir að hafa eignast eitt barn saman.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×