Enski boltinn

Klopp hélt á­fram að urða yfir fjöl­miðla­manninn eftir að strunsa úr við­talinu

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Sigur og Klopp hefði átt möguleika á að enda feril sinn með Liverpool á Wembley. Sá möguleiki er nú úr sögunni.
Sigur og Klopp hefði átt möguleika á að enda feril sinn með Liverpool á Wembley. Sá möguleiki er nú úr sögunni. Visionhaus/Getty Images

Jürgen Klopp, þjálfari Liverpool, var allt annað en sáttur eftir 4-3 tap sinna manna gegn Manchester United í átta liða úrslitum ensku bikarkeppninnar. Svo sár var Klopp að hann strunsaði úr viðtali við Viaplay eftir leik og lét starfsmann sjónvarpsstöðvarinnar fá það óþvegið er hann gekk til búningsklefa.

Það var ljóst að Þjóðverjanum var heitt í hamsi eftir tapið en leikurinn fór alla leið í framlengingu. Þar komst Liverpool yfir áður en heimamenn í Man United skoruðu tvívegis í blálokin og unnu ótrúlegan 4-3 sigur.

nskKlopp var enn heldur súr þegar hann ræddi við fjölmiðla eftir leik og þar fékk starfsmaður Viaplay frá Danmörku að finna fyrir því.

„Frekar heimskuleg spurning,“ byrjaði Klopp á að segja. Hann hélt síðan áfram og ræddi leikjaálag Liverpool undanfarið. Þegar blaðamaður byrjaði á næstu spurningu var líkt og Klopp hafi fengið nóg. Gekk hann einfaldlega á brott án þess að svara spurningunni.

„Þú ert greinilega ekki í góðu formi og ég hef ekki þolinmæði fyrir þér.“

Fjölmiðlamaðurinn sem um er ræðir er Niels Christian Frederiksen, lýsandi á Viaplay. Hinn danski Frederiksen var í viðtali við Tipsbladet um spjall sitt við Klopp.

„Þetta kom mér verulega á óvart sem og fólkinu sem stóð í kringum mig, því var mjög brugðið. Klopp hélt áfram að kalla og öskra á mig meðan hann labbaði niður ganginn. Ég fór á eftir honum því mér fannst þetta heldur skrítið.“

„Mér var mjög brugðið á meðan aðrir voru í losti og spurðu mig hvort það væri í lagi með mig,“ bætti Frederiksen við en hann er í fínu lagi. Hann hafði oft rætt við Klopp áður en kom að viðtalinu á sunnudag.

„Ég þekki hann ekki persónulega en ég talaði nokkrum sinnum við hann þegar hann var hjá Mainz sem og þegar hann var hjá Borussia Dortmund. Þá hef ég margoft talað við hann síðan hann kom til Liverpool. Við eigum því alls ekki í slæmu sambandi.“

„Ég veit að þú verður ekki einn besti þjálfari heims í fleiri ár án þess að vera einnig gríðarlega tapsár. Grunnurinn að því að vera góður þjálfari er að þér líka illa við að tapa og að þú ert sigurvegari.“

„Ég túlka þetta þannig að hann hafi verið gríðarlega pirraður eftir tap gegn Man United, sérstaklega eins og leikurinn þróaðist. Þeir voru tvívegis yfir í leiknum og hefðu átt að klára hann. Klopp átti sér þann draum að spila lokaleik sinn á Englandi á Wembley en það var tekið frá honum. Ég get skilið af hverju hann var svona rosalega pirraður.“

„Svo fékk hann spurningu sem honum líkaði illa við og missti það. Það kemur fyrir á bestu bæjum. Ég sé ekkert að því,“ sagði Frederiksen að endingu en hann trúir því að þeir Klopp muni tala saman aftur á faglegu nótunum áður en langt um líður.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×