Handbolti

„Breytir eigin­lega öllu fyrir mig“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Dagur gæti vart hafa byrjað betur hjá Króötum.
Dagur gæti vart hafa byrjað betur hjá Króötum. Vísir/Sigurjón

Efasemdir um réttmæti ráðningar Dags Sigurðssonar sem landsþjálfara Króatíu í handbolta eru á bak og burt. Óskabyrjun hans með liðið opnar á möguleika fyrir framhaldið.

Það bar á óánægju í Króatíu þegar Dagur var ráðinn sem þjálfari landsliðsins þar í landi en hann er fyrsti útlendingurinn í sögunni til að stýra liðinu. Nenad Kljaic sem varð Ólympíumeistari með Króötum árið 1996 líkti ráðningu Dags við dauðadóm króatískra þjálfara. Dagur segist skilja afstöðu hans.

„Ég fékk ekkert slæmar móttökur en sambandið fékk gagnrýni á sig fyrir að taka útlending og það var alveg nákvæmlega það sama uppi á teningunum þegar ég tók við Þýskalandi,“

„Ég hef alltaf svarað því þannig að ef Ísland myndi taka útlending yrði maður kannski bara smá pirraður líka fyrir hönd íslensku þjálfaranna af því að við teljum okkur líka eiga góða þjálfara. Það er bara eðlilegur hlutur,“ segir Dagur í samtali við íþróttadeild.

En jók þetta ekki á pressuna í aðdraganda umspilsins?

„Nei, það jók ekkert á pressuna. Hún var alveg næg fyrir. Eins og ég sagði þá var allt undir í þessum fyrsta leik. Það sást kannski á leik liðsins, við vorum mjög stressaðir fyrstu mínúturnar í leiknum og lentum 5-1 undir. Þannig að maður sá á liðinu að það voru allir aðeins með hnút í maganum,“

„Svo fór þetta að skrölta í gang og við kláruðum restina alveg frábærlega vel,“ segir Dagur.

Mikilvægt fyrir framhaldið

Króatar unnu alla þrjá leiki sína í umspilinu og flugu inn á leikana í París. Vinsældir Dags eru miklar eftir þá sigra.

„Þetta fór alveg eins vel og hægt var. Þetta voru pressuleikir, sérstaklega fyrsti leikurinn á móti Austurríki. Það var mikil pressa í honum, að lenda ekki upp við vegg fyrir Þjóðverjaleikinn daginn eftir,“ segir Dagur en hans menn mættu fullir sjálfstrausts gegn lærisveinum Alfreðs Gíslasonar og unnu þriggja marka sigur.

Eins og Dagur segir voru taugarnar þandar gegn Austurríki í fyrsta leik. Sigurinn þar létti andrúmsloftið umtalsvert og opna á möguleika fyrir framhaldið.

„Þetta breytir eiginlega öllu fyrir mig upp á það að móta nýtt lið. Það er mikilvægt að fá þessa sumartörn. Þá fær maður einhverja 20 til 30 daga með liðinu, þá getur maður aðeins mótað þetta. Það er klárlega eitthvað sem lið eins og Ísland hefði þurft á að halda núna. Það er gulls ígildi að fá svona æfingatörn,“ segir Dagur.

Viðtalið má sjá í spilaranum að ofan.


Tengdar fréttir

Vilja króatíska goðsögn í stað Dags

Japanska handknattleikssambandið virðist hafa fundið þjálfara til að fylla í skarðið sem Dagur Sigurðsson skildi eftir sig þegar hann tók við landsliði Króatíu.

Dagur kom á óvart og sleppti stórstjörnu

Dagur Sigurðsson hefur nú valið sinn fyrsta landsliðshóp sem þjálfari króatíska landsliðsins í handbolta. Mesta athygli vekur að hann skyldi ekki velja eina stærstu stjörnuna, Luka Cindric, í 21 manns hóp sem á að tryggja Króatíu sæti á Ólympíuleikunum.

„Ég er að fara í ljónagryfjuna“

Ljóst er að pressan verður mikil á Degi Sigurðssyni sem fyrsta erlenda þjálfara landsliðs Króatíu í handbolta. Dagur er maðurinn sem Króatar treysta á að færi þeim Ólympíuleika í sumar og velgengni á heimavelli á HM í janúar.

Dagur fær íslenskan reynslubolta til að hjálpa sér

Dagur Sigurðsson þarf að hafa snör handtök sem nýr landsliðsþjálfari Króatíu í handbolta því eftir hálfan mánuð ætla Króatar að tryggja sér sæti á Ólympíuleikunum í París í sumar. Hann fær íslenskan reynslubolta og gamlan lærisvein til að hjálpa sér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×