Flótti Matthíasar Mána af Litla-Hrauni

Fréttamynd

Fangelsismálastjóri skorar á Matthías að gefa sig fram

Það er ekki refsivert að strjúka úr fangelsi. Ég tel að það ætti að vera refsivert og að það ættu að vera þungar refsingar við því. Það er einvörðungu refsivert ef um samantekin ráð að ræða. Hafi menn sammælst um að strjúka þá er það refisvert. Hann skorar á Matthías Mána Erlingsson, sem strauk úr fangelsinu á Litla-Hrauni á mánudag að gefa sig fram, svo mál hans verði ekki enn erfiðara en það er þegar orðið.

Innlent
Fréttamynd

Matthías Máni enn ófundinn

Matthías Máni Erlingsson, strokufanginn á Litla-Hrauni, er enn ófundinn. Talið er að hann hafi strokið rétt eftir hádegi, en hann klifraði yfir girðingu sem umlykur fangelsið. Lögreglan er enn að vinna út frá vísbendinum sem henni hafa borist, en engin skipulögð leit verður með aðstoð björgunarsveitarmanna í dag eins og var fyrr í vikunni.

Innlent
Fréttamynd

Rekja fótspor sem fundust við Litla-Hraun í gær

Um tíu björgunarsveitamenn eru við störf hjá Litla-Hrauni, til þess að rekja fótspor sem fundust í gær, og talið er að megi rekja til Matthíasar Mána Erlingssonar, fangans af Litla-Hrauni. Leitin hefur enn engan árangur borið, en Matthías strauk á mánudag, um klukkan eitt að talið er.

Innlent
Fréttamynd

Halda áfram að leita strokufangans

Leit mun halda áfram að fanganum Matthíasi Mána Erlingssyni í dag. Þegar Vísir náði tali af lögreglunni rétt fyrir klukkan tíu í morgun fengust þær upplýsingar að lögregla og aðrir viðbragðsaðilar væru að fara á fund til að skipuleggja daginn. Á þeim fundi verður farið yfir fyrirliggjandi gögn og ákveðið hvernig deginum verður háttað. Nú eru liðnir tæpir fjórir sólarhringar frá því að maðurinn strauk úr fangelsinu. Hann er dæmdur fyrir að hafa reynt að myrða stjúpmóður sína.

Innlent
Fréttamynd

Íbúar á Eyrarbakka skelkaðir vegna strokufanga

"Þetta eru harðsnúnir menn sem snúa sér yfir þetta eins og ekkert sé," segir Skúli Steinsson, íbúi á Eyrarbakka, sem gengdi starfi fangavarðar í 23 ár. Hann segir að sér þyki hræðilegt að vita til þess að menn virðist geta klifrað yfir varnargirðingarnar ef þeim sýnist svo, en strokufangans, Matthíasar Mána Erlingssonar, var leitað í umhverfi Litla-Hrauns í dag.

Innlent
Fréttamynd

Björgunarsveitamenn hættir leit að strokufanganum

Björgunarsveitamenn eru hættir að leita að Matthíasi Mána Erlingssyni, fanga sem strauk frá Litla-Hrauni, í dag. Um 50 björgunarsveitamenn voru við leit í dag, en jafnframt tóku fangaverðir og lögreglan þátt í henni. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu munu lögreglumenn halda áfram leit að honum. Þeir munu meðal annars fara yfir vísbendingar sem hafa borist.

Innlent
Fréttamynd

Foreldrar á Eyrarbakka sóttu börnin í skólann

"Við reynum að nálgast þetta þannig að þetta hafi engin áhrif á börnin, að þau séu skelfd, en maður finnur það í foreldrahópnum að fólk er með varann á sér,“ segir Magnús J. Magnússon, skólastjóri Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri.

Innlent
Fréttamynd

Matthíasar Mána leitað við Eyrarbakka

Fjölmennt lið lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu leitar nú að Matthíasi Mána Erlingssyni, strokufanga af Litla-Hrauni. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er nú leitað á Eyrarbakka, steinsnar frá Litla-Hrauni.

Innlent
Fréttamynd

Strokufanginn enn ófundinn

Strokufanginn Matthías Máni Erlingsson, sem strauk af Litla Hrauni í fyrradag, er enn ófundinn og er leitin nú á forræði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Innlent
Fréttamynd

Hættulegur og gengur enn laus

„Ég skil mjög vel gagnrýni og aðfinnslur Fangavarðafélagsins og fangelsisyfirvalda,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra vegna þeirrar umræðu sem skapast hefur eftir að ofbeldismaðurinn Matthías Máni Erlingsson strauk af Litla-Hrauni í fyrradag.

Innlent
Fréttamynd

Engu nær um ferðir Matthíasar Mána

Lögregla hefur nú leitað í rúman sólarhring að hættulegum fanga sem strauk af Litla Hrauni. Þrátt fyrir fjölda vísbendinga er lögregla engu nær. Fangelsisstjóri segir á áætlun að bæta girðinguna sem talið er að fanginn hafi komist yfir.

Innlent
Fréttamynd

Matthías Máni enn ófundinn

Matthías Máni Erlingsson, fanginn sem strauk af Litla-Hrauni í gær, var enn ófundinn þegar fréttastofa Stöðvar 2 og Vísis kannaði málið á þriðja tímanum í dag. Matthías strauk, sem kunnugt er, úr fangelsinu um eittleytið í gær. Lögreglan á Selfossi hefur verið með málið til rannsóknar frá klukkan þrjú í gær en lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun taka málið yfir í dag.

Innlent
Fréttamynd

„Við förum yfir okkar verklagsreglur"

"Við förum yfir okkar verklagsreglur og athugum hvað það var sem þarna gerðist nákvæmlega, en við erum ekki tilbúin að tjá okkur meira um þetta. Ég vísa bara á lögregluna sem fer með rannsókn málsins,“ segir Páll Winkel, fangelsismálastjóri.

Innlent
Fréttamynd

Fangi strauk af Litla-Hrauni

Fangi strauk af Litla Hrauni um eittleytið í dag. Lögreglan á Selfossi fékk tilkynningu um strokið um þrjúleytið og er nú að leita að honum. Lögreglan vildi engar upplýsingar gefa um fangann þegar Vísir spurðist fyrir um málið í dag.

Innlent