Bakþankar

Biljónsdagbók 23.09.2007

OMXI15 var 7.640,65, þegar ég byrjaði á stefnumótunarferlinu yfir forrétti á Gordon Ramsay í London, og Nasdaq var 2.581,66 þegar ég var búinn að móta stefnuna og þjónninn bar fram aðalréttinn. "Það er þá á hreinu," sagði ég við Iwaunt Moore, "hvert er meginmarkmið og grund­vallarstefna ká-dsjí-ví-pí-ess, Katla dsjíó­þörmal vissdomm and páver senter: Við skilgreinum okkur á markaði sem leiðandi hátækni­fyrirtæki í þekkingar­iðnaði og byggjum upp sérhæfða þekkingar­þjónustu kringum þekkingar­kjarna á nýtingar­sviði hreinnar orku á grundvelli framtíðarsýnar sem felst í eignarhaldi á þeim auðlindum Íslands, sem aðrir fjárfestar eru ekki búnir að fá eignarhald yfir, meiri framlegð og trúverðugri og traustri umfram­arðsemi."

Það tíðkast ekki á Gordon Ramsay að blóta yfir aðalrétti sem kostar yfirleitt 350 til 400 pund. Þess vegna litu nærstaddir upp með auðstéttarskelfingu í svip þegar Iwaunt Moore horfði á mig eins og naut á nýja virkjun og urraði: Vott ðu hell ar jú tokinga bát!?

Ég sagði að þetta væru niðurstöður eftir stefnumótunarferli fyrir Katla dsjíóþörmal vissdomm and páver senter og stefnan væri einföld: Við ætluðum að græða pening, græða mikinn pening, græða meiri pening en nokkru sinni fyrr og græða út yfir gröf og dauða. Með hliðsjón af síðasttöldu stefnuatriði hefði ég notað orðið "framtíðarsýn" í stefnuyfirlýsingunni, áur missjón.

Iwaunt Moore sagðist ekki trúa að Íslendingar létu okkur og útlenda spekúlanta hafa allar sínar auðlindir til eignar og einkaafnota um ókomna tíð. Þetta hlyti að vera grín. Ég sagði að þetta væri ekki meira grín en Geysirgrín. Nú vantar bara að finna moldríkan Íslending sem vill skrifa sig fyrir slatta af hlutabréfum í KDVPS, einhvern sem hefur meikað það á eigin verðleikum í útlöndum og Íslendingar fást til að trúa að sé í þessu með okkur af hugsjón. Óli er kominn í sniglaveislu með Grínistunum. Ég er þá að hugsa um að tala við Björk

Eftir matinn á Gordon Ramsey hringdi í mig frá Íslandi einstæð móðir með tvö börn og spurði hvort ég gæti ekki hjálpað henni með húsaskjól yfir nóttina. Ég skil ekki í þessu fólki. Hvers vegna kaupir það sér ekki íbúð?






×