Bílar

Læknar óttast heiladauða Schumacher

Finnur Thorlacius skrifar
Michael Schumacher.
Michael Schumacher. Autoblog
Formúluökuþórnum Michel Schumacher er enn haldið sofandi á spítalanum í Grenoble í Frakklandi eftir hörmulegt skíðaslys sem hann varð fyrir 29. desember. Læknar sem tjáð hafa sig um ástand hans segja að hver dagur þar sem honum er enn haldið sofandi auki líkurnar á heiladauða hans. Þrátt fyrir það þarf enn að halda honum sofandi til að minnka þörf heila hans á súrefni.

Læknar segja að ávallt sé hætta á heilaskaða eða heiladauða þegar fólki er haldið lengur en 8 daga sofandi. Því sé nú orðið hætt við að Schumacher tapi minni eða að heili hans muni aldrei virka eðlilega úr þessu. Ekki eru þessar fréttir til huggunar fyrir aðstandendur eða aðdáendur hans. Fjölskylda Schumacher er enn á spítalanum og hefur verið þar nú í tæpan mánuð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×