FIH bankinn snýr upp á hendina á fjárfestingarsjóðum 17. desember 2008 14:38
FIH bankinn í Danmörku, sem nú er í eigu íslenska ríkisins, er meðal þeirra banka í landinu sem nú snúa upp á hendina á fjárfestingarsjóðum til að fá sjóðina til að standa við samninga sína um lán. Fjallað er um málið í Börsen í dag og þar er m.a. rætt við Lars Johansen bankastjóra FIH en bankinn lánar töluvert til fjárfestingasjóða. Málið sýnst um lánaskilmála þá sem gerðir eru milli banka og fjárfestingasjóða, svokallaða "covenants". Skilmálarnir kveða á um með hvaða hætti sjóðirnir borga bönkunum til baka af lánum sínum. Er það yfirleitt bundið við hve vel fjárfestingar sjóðanna skila sér til baka. Ef tekjurnar í félagi/fyrirtæki sem fjárfestingarsjóður á minnka getur það haft áhrif á vaxtastigið á lánum sjóðsins í bönkum, það er ef banki á annað borð samþykkir frekari lánveitingar. Ennfremur getur viðkomandi banki gert kröfu um að sjóðurinn auki eiginfjárhlutfall sitt til að gera stöðu sjóðsins traustari. "Það gerist mjög reglulega þessa dagana að þessir skilmálar eru brotnir," segir Lars Johansen en hann vill ekki greina frá því í hve miklum mæli FIH hefur lánað til fjárfestingarsjóða. Fyrirtæki sem fjárfestingarsjóðirnir lenda fyrst og fremst í vandræðum með þessa dagana eru í verslunargeiranum. "Þetta eru þau fyrirtæki sem fyrst lenda í vandamálum en síðan smitar þetta út frá sér," segir Lars Johansen.
Mest lesið Dýr smjörvi á Egilsstöðum vekur mikla athygli Neytendur Ævintýralegt líf: Fjárfestirinn bankaði á gluggann á garðkofanum þar sem hann bjó Atvinnulíf Níu holu golfvöllur á gamalli landnámsjörð Samstarf Búið að afvopna neytendur Neytendur Ólöglegt bleikiefni í hveitinu Neytendur Búið að bjóða í Skagann 3X Viðskipti innlent Brutu samkeppnislög með ótímabærri markaðssetningu Viðskipti innlent Engin málamiðlun þegar kemur að krafti Polestar 4 Samstarf Skúli í Subway reisir glæsihótel við Jökulsárlón Viðskipti innlent Festi festi kaup á Lyfju Viðskipti innlent Fleiri fréttir Boeing samþykkir að játa sök og greiða 34 milljarða sekt Kjarnorkubréf Einsteins til sölu Nvidia verðmætasta skráða fyrirtæki heims Ekki lengur hægt að sjá hvað aðrir „læka“ Lætur mál gegn OpenAI niður falla Danir höndla ekki kóresku pakkanúðlurnar ChatGPT og endurbætt Siri væntanlegar nýjungar Apple Lækkuðu stýrivexti í Evrópu í fyrsta sinn síðan 2019 Írskur matsölustaður hafði betur í vörumerkjadeilum við McDonalds Bein útsending: Fjórða flugferð Starship Prufa að neyða notendur til að horfa á auglýsingar Vangaveltur um að vinkona Ásdísar hafi verið myrt og hent í sjóinn Sjá meira