Toppar í jólaveislu en tölvuskeyti á óbreytta 19. janúar 2011 08:00 Gunnar I. Birgisson, fyrrverandi bæjarstjóri, gagnrýnir núverandi meirihluta í bæjarstjórn Kópavogs harðlega fyrir að halda bæjarfulltrúum veislu á meðan niðurskurður bitni á starfsfólki.
Kostnaður vegna veislu sem bæjarstjórn Kópavogs hélt á Þorláksmessu fæst ekki uppgefinn á bæjarskrifstofnum. Að sögn Örnu Schram upplýsingafulltrúa liggja þessar upplýsingar enn ekki fyrir. Gunnar I. Birgisson, bæjarfullrúi minnihluta Sjálfstæðisflokks og fyrrverandi bæjarstjóri, bað um sundurliðaðan kostnað vegna veislunnar á fundi bæjarráðs 6. janúar. Sagði hann um að ræða veislu sem bæjarstjórnin hefði haldið sjálfri sér í Molanum, menningarmiðstöð bæjarins fyrir ungt fólk. „Mér fannst þetta óþarfi í ljósi þess að starfsmenn fengu ekki einu sinni jólakveðju frá bæjarstjórn og bæjarstjóra nema í gegn um tölvupóst," segir Gunnar. „Með minni fyrirspurn er ég bara að mótmæla þessu bulli. Þetta er bara algjörlega úr takti við tímann." Hinn 7. janúar óskaði Fréttablaðið eftir upplýsingum frá Kópavogsbæ um veisluna. Meðal annars var spurt um reikninga og gestalista. Sem fyrr segir er engin svör að fá um málið á bæjarskrifstofum Kópavogs og Gunnari hefur heldur ekki verið svarað. Hann segir að gestir hafi verið bæjarfulltrúar og helstu yfirmenn og makar þeirra. Í ljósi efnahagsástandsins hafi hver veislugestur borgað 2.500 krónur upp í kostnaðinn. „Menn geta ímyndað sér að veisla sem stendur frá klukkan sjö til eitt um nótt kostar nú örugglega meira en það," bendir Gunnar á og ítrekar að þegar vel árar sé ekkert að því að launa framlag bæjarfulltrúa og maka þeirra sem mikið mæði á. Gunnar segir að á árunum 1990 til 1996 hafi hver bæjarfulltrúi komið með sitt eigið vín ef haldin var veisla. Þegar hann var bæjarstjóri árið 2008 hafi hann boðið bæjarfulltrúunum í mat og drykk eftir gerð fjárhagsáætlunar. „Svo snöpuðum við nú hvítvín sem við áttum þarna en ég keypti rauðvínið í veisluna. Það gerði ég úr eigin vasa því það hefur alltaf farið mikið í taugarnar á mér að drekka á kostnað skattborgaranna. Menn geta borgað það sjálfir og sérstaklega þegar herðir að," undirstrikar Gunnar, sem ekki mætti í veisluna á Þorláksmessu: „Þegar við erum að skera allt niður þá passar þetta ekki gagnvart starfsfólkinu okkar. Það hefur alltaf fengið jólakort og litla gjöf til að sýna því þakklæti fyrir vel unnin störf. En þetta var haldið í staðinn. Ég bara mæti ekki í svona rugl." gar@frettabladid.is
Mest lesið „Ekki sniðugt að vera með fólk sofandi þarna inni“ Innlent Flytur út frá foreldrum sínum þökk sé hundaheppni Innlent Halla Hrund sótti ekki um nýja forstjórastöðu Innlent Ósátt við skógrækt í mólendi fyrir utan Húsavík Innlent Fastur á leigumarkaði með verðlaust hús í Grindavík Innlent Skilur gagnrýni á háa orlofsgreiðslu Innlent Sagðir hafa lagt á ráðin um skemmdarverkin á Nord Stream í ölæði Erlent Verkfræðingar segja vald SA „óeðlilega mikið“ Innlent Fundu ferðamennina um hálf eitt í nótt Innlent Leggur til að hjólhýsabyggðin verði við Rauðavatn eða í Gufunesi Innlent Fleiri fréttir Leigubílstjóri ók á farþega sem borgaði ekki Fordæmalausar skemmdir unnar á Sprengisandi Helga Vala til Lögfræðistofu Reykjavíkur Ósátt við skógrækt í mólendi fyrir utan Húsavík Sektaður fyrir að nota rafólar á hunda Skilur gagnrýni á háa orlofsgreiðslu „Ekki sniðugt að vera með fólk sofandi þarna inni“ Flytur út frá foreldrum sínum þökk sé hundaheppni Beðið eftir gosi, orlofsgreiðslur og ósáttir verkfræðingar Fjórir berjast um embætti umboðsmanns Alþingis Fundu erfðabreytileika sem stórauka áhættu á Parkinsons „Týpísk pólitík að tefja málið“ Afhentu bæjarstjóra undirskriftalista vegna Coda Terminal Leggur til að hjólhýsabyggðin verði við Rauðavatn eða í Gufunesi Verkfræðingar segja vald SA „óeðlilega mikið“ Fastur á leigumarkaði með verðlaust hús í Grindavík Halla Hrund sótti ekki um nýja forstjórastöðu Fundu ferðamennina um hálf eitt í nótt Ekið heim eftir „smá uppsteyt“ í miðborginni Allt með kyrrum kjörum þrátt fyrir reyk og ljóstýru Gaukarnir gista og fá snyrtingu Leita að göngumanni í Kerlingarfjöllum Óttast um velferð íbúa og höfðar til skynsemi þeirra Tryggja þurfi að vindorkan haldist í höndum þjóðarinnar Bótagreiðslur til Íslendinga almennt hærri Á annað hundrað kvenna bíða eftir minni brjóstum Setti hraðamet í heiðurssundi fyrir syni Eddu Bjarkar Ósammála um hvort árekstur hefði orðið Gripin með óhrein peningabúnt í Leifsstöð Stíga annað stórt skref að virkjun við Búrfell Sjá meira