Ívari sleppt úr gæsluvarðhaldi 18. janúar 2011 06:15 Ívar Guðjónsson var leiddur fyrir dómara á föstudag og úrskurðaður í vikulangt varðhald. Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Ívar Guðjónsson, fyrrverandi forstöðumaður eigin fjárfestinga Landsbankans, var látinn laus úr gæsluvarðhaldi í gær. Yfirheyrslum yfir honum er lokið í bili og þess vegna taldi sérstakur saksóknari ekki þörf á að halda honum lengur á bak við lás og slá. Héraðsdómur úrskurðaði Ívar í vikulangt varðhald á föstudaginn. Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri, var sama dag úrskurðaður í varðhald til 25. janúar. Hann situr enn inni. Þá hefur Halldór J. Kristjánsson, sem var bankastjóri við hlið Sigurjóns, verið úrskurðaður í farbann til 25. janúar. Ívar og Sigurjón kærðu báðir gæsluvarðhaldsúrskurðina til Hæstaréttar. Veittur var frestur til dagsins í dag til að skila Hæstarétti greinargerðum. Í kjölfar þess mun Hæstiréttur í kjölfarið úrskurða um hvort Sigurjón skal sitja áfram inni. Halldór kærði ekki farbannsúrskurðinn, og sagði það alltaf hafa staðið til að dvelja á landinu eins lengi og saksóknari vildi. Alls hafa um 40 manns verið yfirheyrðir vegna rannsóknar embættisins á málefnum Landsbankans síðan ráðist var í umfangsmiklar aðgerðir fyrir helgi með húsleitum og handtökum. Að sögn Ólafs Þórs Haukssonar, sérstaks saksóknara, verður yfirheyrslum haldið áfram næstu daga og þá mun fjölga enn í hópnum. Rannsóknin snýr að umfangsmikilli markaðsmisnotkun á árunum 2003 til 2008 og kaupum Landsbankans á verðlausu lánasafni dótturfélagsins í Lúxemborg. Skilasvik og umboðssvik eru meðal ætlaðra brota sakborninga. - sh
Mest lesið Flytur út frá foreldrum sínum þökk sé hundaheppni Innlent „Ekki sniðugt að vera með fólk sofandi þarna inni“ Innlent Ósátt við skógrækt í mólendi fyrir utan Húsavík Innlent Halla Hrund sótti ekki um nýja forstjórastöðu Innlent Fastur á leigumarkaði með verðlaust hús í Grindavík Innlent Skilur gagnrýni á háa orlofsgreiðslu Innlent Fordæmalausar skemmdir unnar á Sprengisandi Innlent Sagðir hafa lagt á ráðin um skemmdarverkin á Nord Stream í ölæði Erlent Verkfræðingar segja vald SA „óeðlilega mikið“ Innlent Úkraínumenn hafa náð valdi yfir Súdsja Erlent Fleiri fréttir Gæti misst fótinn eftir að starfsmannarútan ók yfir hana Áttar sig ekki á ákalli formanns VG Ósammála ráðherrar, brotthvarf tónleikastaða og einmana ungi Neitaði að borga þegar á áfangastað var komið Fordæmalausar skemmdir unnar á Sprengisandi Helga Vala til Lögfræðistofu Reykjavíkur Ósátt við skógrækt í mólendi fyrir utan Húsavík Sektaður fyrir að nota rafólar á hunda Skilur gagnrýni á háa orlofsgreiðslu „Ekki sniðugt að vera með fólk sofandi þarna inni“ Flytur út frá foreldrum sínum þökk sé hundaheppni Beðið eftir gosi, orlofsgreiðslur og ósáttir verkfræðingar Fjórir berjast um embætti umboðsmanns Alþingis Fundu erfðabreytileika sem stórauka áhættu á Parkinsons „Týpísk pólitík að tefja málið“ Afhentu bæjarstjóra undirskriftalista vegna Coda Terminal Leggur til að hjólhýsabyggðin verði við Rauðavatn eða í Gufunesi Verkfræðingar segja vald SA „óeðlilega mikið“ Fastur á leigumarkaði með verðlaust hús í Grindavík Halla Hrund sótti ekki um nýja forstjórastöðu Fundu ferðamennina um hálf eitt í nótt Ekið heim eftir „smá uppsteyt“ í miðborginni Allt með kyrrum kjörum þrátt fyrir reyk og ljóstýru Gaukarnir gista og fá snyrtingu Leita að göngumanni í Kerlingarfjöllum Óttast um velferð íbúa og höfðar til skynsemi þeirra Tryggja þurfi að vindorkan haldist í höndum þjóðarinnar Bótagreiðslur til Íslendinga almennt hærri Á annað hundrað kvenna bíða eftir minni brjóstum Setti hraðamet í heiðurssundi fyrir syni Eddu Bjarkar Sjá meira