Staðfesti gæsluvarðhald yfir meintum nauðgara 18. janúar 2011 17:58
Hæstiréttur Íslands hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manni sem er grunaður um að hafa nauðgað konu inn á salerni á skemmtistað í Reykjavík um síðustu helgi. Maðurinn sætir gæsluvarðhaldi til 11. febrúar samkvæmt úrskurði Hæstaréttar. Atvikið átti sér stað aðfaranótt sunnudagsins á skemmtistað í Reykjavík. Eftir því sem næst verður komist var konan, sem einnig er á fimmtugsaldri, mjög ölvuð á staðnum. Í gæsluvarðhaldsdómi héraðsdóms kemur fram að tvær konur hafi komið með konuna á slysadeild vegna grunsemda um nauðgun. Konurnar tvær komu að konunni rænulausri vegna ofneyslu áfengis á salerninu og hafi sokkabuxur og nærbuxur verið dregnar niður um hana að hluta til. „Þær hafi mætt kærða á leiðinni út af salerninu og átt orðaskipti við hans. Muni hann hafa gefið í skyn við aðra þeirra að hann hefði haft samræði við A (konuna innsk.blm.) á salerninu," segir í gæsluvarðhaldsdómnum. Á öryggismyndavélum skemmtistaðarins sést að maðurinn fer inn á klósettganginn með konunni. Hann hefur játað að hann sé á myndskeiðinu en getur engar skýringar gefið á því hvers vegna hann hafi sést þar með konunni. Hann hefur neitað því að haft samræði eða önnur kynferðisleg samskipti við konuna. Í lífsýnum úr leggöngum konunnar, stuttu eftir komu hennar á slysadeild, hafi sést nýlegar sáðfrumur, sem ekki séu taldar meira en sólarhrings gamlar. Lífsýnin verða send til Svíþjóðar til DNA rannsóknar. Rannsókn málsins er á lokastigi. Umræddur maður er erlendur ríkisborgari en hefur unnið hér á landi um skeið og segir í gæsluvarðhaldsdómnum að til hafi staðið að hann héldi til heimalands síns aftur. „Ætla megi að kærði muni reyna að komast úr landi gangi hann laus," segir í gæsluvarðhaldsdómnum. Hann hefur ekki komið við sögu hjá lögreglu áður.
Mest lesið „Ekki sniðugt að vera með fólk sofandi þarna inni“ Innlent Flytur út frá foreldrum sínum þökk sé hundaheppni Innlent Halla Hrund sótti ekki um nýja forstjórastöðu Innlent Ósátt við skógrækt í mólendi fyrir utan Húsavík Innlent Fastur á leigumarkaði með verðlaust hús í Grindavík Innlent Skilur gagnrýni á háa orlofsgreiðslu Innlent Sagðir hafa lagt á ráðin um skemmdarverkin á Nord Stream í ölæði Erlent Verkfræðingar segja vald SA „óeðlilega mikið“ Innlent Fundu ferðamennina um hálf eitt í nótt Innlent Leggur til að hjólhýsabyggðin verði við Rauðavatn eða í Gufunesi Innlent Fleiri fréttir Leigubílstjóri ók á farþega sem borgaði ekki Fordæmalausar skemmdir unnar á Sprengisandi Helga Vala til Lögfræðistofu Reykjavíkur Ósátt við skógrækt í mólendi fyrir utan Húsavík Sektaður fyrir að nota rafólar á hunda Skilur gagnrýni á háa orlofsgreiðslu „Ekki sniðugt að vera með fólk sofandi þarna inni“ Flytur út frá foreldrum sínum þökk sé hundaheppni Beðið eftir gosi, orlofsgreiðslur og ósáttir verkfræðingar Fjórir berjast um embætti umboðsmanns Alþingis Fundu erfðabreytileika sem stórauka áhættu á Parkinsons „Týpísk pólitík að tefja málið“ Afhentu bæjarstjóra undirskriftalista vegna Coda Terminal Leggur til að hjólhýsabyggðin verði við Rauðavatn eða í Gufunesi Verkfræðingar segja vald SA „óeðlilega mikið“ Fastur á leigumarkaði með verðlaust hús í Grindavík Halla Hrund sótti ekki um nýja forstjórastöðu Fundu ferðamennina um hálf eitt í nótt Ekið heim eftir „smá uppsteyt“ í miðborginni Allt með kyrrum kjörum þrátt fyrir reyk og ljóstýru Gaukarnir gista og fá snyrtingu Leita að göngumanni í Kerlingarfjöllum Óttast um velferð íbúa og höfðar til skynsemi þeirra Tryggja þurfi að vindorkan haldist í höndum þjóðarinnar Bótagreiðslur til Íslendinga almennt hærri Á annað hundrað kvenna bíða eftir minni brjóstum Setti hraðamet í heiðurssundi fyrir syni Eddu Bjarkar Ósammála um hvort árekstur hefði orðið Gripin með óhrein peningabúnt í Leifsstöð Stíga annað stórt skref að virkjun við Búrfell Sjá meira