Innlent

Yfir helmingur starfsmanna verður fyrir hótunum og ofbeldi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Það er töluvert álag á starfsfólk bráðasviðs.
Það er töluvert álag á starfsfólk bráðasviðs.
Yfir helmingur starfsmanna á bráðasviði Landspítalans segist hafa orðið fyrir niðurlægjandi framkomu, hótunum eða ofbeldi af hálfu sjúklings eða aðstandenda, samkvæmt niðurstöðum rannsóknar á starfsumhverfi starfsmanna Landspítalans. Hvergi annarsstaðar á Landspítalanum segjast jafnmargir hafa orðið fyrir viðlíka reynslu. En tæplega 50% starfsmanna á geðsviði telja sig hafa orðið fyrir henni.

Elísabet Benedikz, yfirlæknir á bráðasviði, segir að sá hópur sem komi á deildina og beiti hótunum eða ofbeldi sé mjög afmarkaður. Í flestum tilfellum sé um að ræða fólk sem komi vegna drykkju- og ofbeldisláta um helgar. „Ég geri ráð fyrir að langflestar þessar ofbeldisupplifanir starfsfólks séu í þannig aðstæðum," segir Elísabet. Þó ekki séu nema einn til tveir sem hegði sér með þessum hætti á deildinni þá skapi þeir mjög mikið álag á starfsfólk.

„Það þarf ekki nema eitt skemmt epli. Þá verður stór hluti þeirra sem er á vaktinni fyrir einskonar ofbeldi. Þannig að það er ekki óalgengt að fólk verði fyrir hótunum eða ofbeldi af völdum sjúklinga sem eru drukknir, í neyslu eða hreinlega bara geðveikir eða vansælir af öðrum orsökum," segir Elísabet.

Elísabet segir að ýmislegt sé gert til að bregðast við ofbeldi og hótunum. „Lögreglan er með vakt hér á næturnar og um helgar og þeir þjónusta okkur ágætlega. Þeir eru mjög fljótir að koma og hjálpa okkur," segir Elísabet. Víða erlendis sé öryggisgæslan hins vegar töluvert meiri en hér.



Elísabet Benedikz er yfirlæknir á bráðasviði.
Þá segir Elísabet að nýlega hafi verið farið yfir öryggiskerfið á sviðinu og sett upp öryggishnappakerfi. Einnig sé starfsfólki veitt fræðsla um það hvernig eigi að bregaðst við. „Þá sjaldan að upp kemur atvik sem er líklegt til að hafa áhrif á sálarró fólks, að þá erum líka með úrræði til að fást við það. Þannig að við erum ágætlega undirbúin," segir Elísabet. Hún bendir á að á deildinni starfi mikið fagfólk sem hafi burði til að takast á við ýmsar aðstæður.

„Þessi starfsumhverfiskönnun verður endurtekin á bráðasviði, vonandi í vor, vegna þess að við höfum töluverðar áhyggjur af okkar útkomu," segir Elísabet. Búið sé að bæta úr ýmsu frá því að könnunin var gerð og því líkur til þess að næsta könnun komi betur út. Elísabet segir líka að starfsumhverfiskönnunin hafi verið gerð eftir viðamikið sameiningarferli á bráðamóttökum spítalans. Það hafi án efa haft áhrif á niðurstöður starfsumhverfiskönnunarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×