Innlent

Herjólfur siglir til Þorlákshafnar næstu daga

MYND/Arnþór

Vestmannaeyjaferjan Herjólfur mun sigla til Þorlákshafnar næstu daga í stað Landeyjahafnar. Á vef Siglingastofnunar segir að útlit sé fyrir mikla ölduhæð við Suðurströndina næstu daga, sem mun hamla siglingum til Landeyjahafnar.

Auk þess sýna dýptarmælingar að farið er að grynnka utan hafnarinnar. Dýpkunarskipið, sem Íslenska gámafélagið hefur tekið á leigu til dýpkunar er ekki enn komið til landsins, en Perlan er til taks ef ölduhæð fer niður fyrir einn metra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×