Innlent

Hvetja til keðjusöngs hjá stjórnarráðinu

Aðstandendur undirskriftasöfnunar á vefnum orkuaudlindir.is munu ræða við forsvarsmenn ríkisstjórnar Íslands klukkan 10 í dag. Þá verður stjórnvöldum einnig afhentar nærri 50.000 undirskriftir með áskorun til þeirra um að vinda ofan af einkavæðingu helstu orkufyrirtækja landsins og láta fara fram þjóðaratkvæðagreiðslu um eignarhald og nýtingu orkuauðlindanna.

Þá hvetja aðstandendurnir alla sem láta sig málið varða til að safnast saman fyrir framan stjórnarráðshúsið við Lækjargötu klukkan 10 í dag og færa yfirvöldum undirskriftirnar með keðjusöngnum „Sá ég spóa".- kg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×