„Ég vil ekki bíða og sjá lengur, ég vil bara að eitthvað sé gert." Boði Logason skrifar 22. nóvember 2010 21:33 Ragna Erlendsdóttir móðir Ellu Dísar er nú á leið upp á spítala í London til að fara með Ellu Dís í rannsóknir „
Við erum bara að labba upp á spítala, enska kerfið er svolítið erfitt. Hún hefur ekki verið inni hérna lengi svo það tók tíma að finna hana í kerfinu," segir Ragna Erlendsdóttir, móðir Ellu Dísar, sem er núna stödd í London. Ragna fór í skyndi með Ellu Dís til Englands í gærkvöldi vegna þess að hún var ósátt við vinnubrögð lækna á Barnaspítala Hringsins. Hún ákvað því að fara með Ellu Dís til London, án samráðs við íslenska lækna, og telur að Ella Dís sé hugsanlega komin með lifrabilun. „Hún er að fara núna í blóðrannsóknir og fleira af því hún tekur ekki næringunni vel. Það er búið að tala við lækna sem þekkja hana," segir Ragna sem hefur ekki enn hitt sérfræðinga til að láta skoða Ellu Dís. „Við vorum á neyðarmóttökunni alveg til sjö í morgun svo sváfum við í allan dag. En hún er ennþá með línu í hálsinum, sem fer í æð til að taka blóð og svona, sem þarf að fylgjast vel með. Við vitum meira í seint í kvöld." Eins og fyrr segir fór Ragna í skyndi til London í gær. Hún segir að flugið hafi gengið vel og þakkar Icelandair fyrir aðstoðina en Ella Dís fékk að liggja í tveimur sætum og Ragna sat hliðina á henni. „Ella Dís er ennþá svolítið þreytt alveg eins og áður en við fórum út. Hún er alveg allt í lagi, nema blóðsýnin sýndu sódíummagnið var að lækka, sem tengist lifrinni eða smáþörmunum, þeir eru ekki að ná að vinna rétt." Hún segir að hún hafi orðið þreytt á að bíða í gær eftir svörum frá íslenskum læknum og því hafi hún ákveðið að fara út. „Þeir sögðu að þetta væri ekkert það alvarlegt, alveg eins og á föstudaginn þegar þeir sögðu að hún væri með hægðartregðu þegar hún var lífshættulega veik. Ég fékk bara nóg og fannst við ekki vera í öruggum höndum, þannig séð." Læknarnir hér heima sögðu að hún væri góð í síðustu viku ef litið væri á tölur úr niðurstöðum úr rannsóknum. „Ég lýsti áhyggjum mínum eftir að hún fór að lækka á föstudaginn og á laugardaginn lækkaði hún enn meira. Hún var komin í lágmarkstölur á sunnudag, ég vildi fá svör afhverju þetta væri að gerast, en þeir voru einhvern veginn að gera lítið úr þessu og sögðu það sama og á föstudaginn. Sögðu mér bara að bíða og sjá, en ég vil ekki bíða og sjá lengur, ég vil bara að eitthvað sé gert." „Við erum svo heppin að hún á enskan pabba og hefur sín tengsl hérna úti, ég gat því tekið þessa ákvörðun," segir Ragna en faðir Ellu Dísar var á leið upp á spítala þegar Vísir náði tali af móður hennar nú í kvöld.
Tengdar fréttir Fór í skyndi með Ellu Dís á spítala í London Ragna Erlendsdóttir fór í skyndi með dóttur sína, Ellu Dís, til Englands í gærkvöldi. Ragna var ósátt við vinnubrögð lækna á Barnaspítala Hringsins og ákvað, án samráðs við íslenska lækna, að fara með dóttur sína á spítala í London. 22. nóvember 2010 09:27 Mest lesið „Í mínum huga alveg útilokað“ Innlent „Ef þessi maður kemst út úr fangelsi mun hann drepa barnið mitt“ Innlent Jarðgöng undir Miklubraut fýsilegri kostur Innlent Stærðarinnar skilti sem ekkert má sýna Innlent Trump eykur forskotið og Biden ekki á förum Erlent „Ef þið haldið mér áfram í fangelsi þá verður vandamál“ Innlent Segja Ásgeir Helga hafa verið 20 mínútur í stæðinu Innlent Óhjákvæmilegt fyrir stjórnvöld að grípa inn í Innlent Sveitastrákur mætir með byssuna sína á Ólympíuleikana Innlent Þrír af hverjum fjórum sitja eftir með sárt ennið Innlent Fleiri fréttir „Í mínum huga alveg útilokað“ Sveitastrákur mætir með byssuna sína á Ólympíuleikana Stærðarinnar skilti sem ekkert má sýna Jarðgöng undir Miklubraut fýsilegri kostur Óhjákvæmilegt fyrir stjórnvöld að grípa inn í Milljarðar streyma úr landi með starfsemi veðmálafyrirtækja Lagabreytingin vegi að eldri borgurum og öryrkjum erlendis Vestmannaeyjabær höfðar skaðabótamál á hendur Vinnslustöðinni Bóndi þvingaður til að afhenda hrút Segja Ásgeir Helga hafa verið 20 mínútur í stæðinu Segja Grindavík alls ekki ónýta og vilja hleypa fólki inn Fjórar ferðir vegna heilbrigðisþjónustu fást nú endurgreiddar Skemmdu bíla í reiðiskasti áður en þeir flúðu lögreglu á rafskútu Dýrmætu vasaúri og silfurfesti stolið af byggðasafni „Ef þessi maður kemst út úr fangelsi mun hann drepa barnið mitt“ Rannsókn lokið á máli sem snýr að Polar Nanoq Fyrsta makrílfarmi vertíðarinnar landað í Neskaupstað Kári Garðarsson ráðinn framkvæmdastjóri Samtakanna 78 „Að láta taka sig ósmurt? Takk, en nei takk“ Albert neitaði sök Mikil tækifæri felist í að gera Þórsmörk að þjóðgarði Öldrun heimilislækna og fólksfjölgun valda læknaskorti Sjómenn „arfavitlausir“ og Lilja biður Stefán um frest Læknaskortur og sjávarháski Ætlaði með allt of ungt barn í ferð og heimtaði endurgreiðslu Ekki náttúruspjöll heldur forvarnir „Ef þið haldið mér áfram í fangelsi þá verður vandamál“ „Við erum að klæða vegi sem eiga að vera malbikaðir“ Íris segir RÚV henda blautri og kaldri tusku í andlit sjómanna Faglært starfsfólk og eftirlit skorti í búsetuúrræðum fyrir börn Sjá meira
Fór í skyndi með Ellu Dís á spítala í London Ragna Erlendsdóttir fór í skyndi með dóttur sína, Ellu Dís, til Englands í gærkvöldi. Ragna var ósátt við vinnubrögð lækna á Barnaspítala Hringsins og ákvað, án samráðs við íslenska lækna, að fara með dóttur sína á spítala í London. 22. nóvember 2010 09:27