Sagnfræðingur: Ólafur Ragnar hefur breytt forsetaembættinu 26. febrúar 2011 18:55
Þeir sem gegna embætti forseta Íslands í framtíðinni geta ekki vænst þess að sitja þar á friðarstóli að mati Guðna Th. Jóhannessonar, sagnfræðings. Hann segir að Ólafur Ragnar hafi breytt embættinu til frambúðar. Rétt rúmlega helmingur þjóðarinnar vill að Ólafur Ragnar Grímsson gefi kost á sér í forsetakosningum á næsta ári samkvæmt könnun fréttastofu stöðvar tvö og fréttablaðsins sem birt var í gær. Ólafur nýtur mikils stuðnings meðal Framsóknar- og sjálfstæðismanna en dæmið snýst hins vegar við þegar kemur að kjósendum samfylkingar og vinstri grænna. Aðeins um tuttugu og sjö prósent kjósenda vinstri grænna styðja þannig framboð Ólafs. Guðni Th. Jóhannesson, sagnfræðingur, segir að túlka verði könnunina út frá ákvörðun forseta í Icesave málinu. „Það er margt fróðlegt í henni. Framsóknarmenn sjá þarna glataða soninn kominn heim. Vinstri grænir hafa snúið baki við fyrrverandi formanni Alþýðubandalagsins og sjálfstæðismenn hugsa með sér að óvinur óvinar míns sé vinur minn," segir Guðni. Telur þú að forseti hafi verið að hugsa um framboð á næsta ári þegar hann tók ákvörðun með Icesave? „Hann myndi aldrei taka undir það en ég held að það hljóti að hafa eitthvað að segja, Ólafur Ragnar Grímsson er metnaðargjarn maður og ég yrði ekki undrandi ef hann ákveddi að láta á það reyna að bjóða fram krafta sína áfram," segir Guðni. Hann segir að Ólafur sé búinn að breyta forsetaembættinu til frambúðar. „Sá eða sú sem vill verða forseti núna verður að gera sér grein fyrir því að vera menningarforseti eins og Kristján Eldjárn og Vigdís Finnbogadóttir , sé liðin tíð. Þeir sem vilja verða forseti núna þeir þurfa að vera búnir undir pólitískan slag," segir Guðni að lokum.
Mest lesið Næsta lægð nálgast landið og færir með sér gula viðvörun Veður „Fullorðna fólk, grow up!“ Innlent Úkraínumenn vilji valda upplausn Erlent Eigi að standa saman um fjárfestingu í jafnrétti til náms Innlent Eldur í Zaporizhzhia-kjarnorkuverinu í Úkraínu Erlent Búið að slökkva eldinn í Zaporizhzhia-kjarnorkuverinu Erlent Biðlisti Rafbókasafnsins geti verið allt að ár Innlent USS Abraham Lincoln skipað að flýta för sinni til Mið-Austurlanda Erlent Allt svo snyrtilegt við höfnina í Vestmannaeyjum Innlent Löturhæg umferð inn í borgina Innlent Fleiri fréttir Biðlisti Rafbókasafnsins geti verið allt að ár Eigi að standa saman um fjárfestingu í jafnrétti til náms Allt svo snyrtilegt við höfnina í Vestmannaeyjum Löturhæg umferð inn í borgina Námsgögn verði einnig gjaldfrjáls í framhaldsskólum Þyrluflugmenn uggandi: „Klárt að þetta hefur neikvæð áhrif“ Þykir sárt að vera stunginn í bakið af vini sínum Treystir Útlendingastofnun fullkomlega Eldur í flugskýli í Múlakoti í nótt Fjölskyldur sendar úr landi og viðvörunarkerfi í Grindavík Enn gasmengun í lægðum en rafleiðni nálgast eðlileg gildi Sérsveitin kölluð til vegna manns sem skaut úr haglabyssu „Fullorðna fólk, grow up!“ Hundurinn í hættu eftir að súkkulaði var sett inn um lúguna Helgi Magnús ritar ráðherra bréf og Ásmundur Einar um menntakerfið Vistaður í fangaklefa þangað til lögregla kemst að því hver hann er Mótmæla brottvísun stórs hóps hælisleitenda Þyki málið miður og til greina komi að breyta gönguleið „Þetta getur ekki verið svona aftur á næsta ári“ „Þið vitið ekki hver raunveruleikinn þarna er“ Rafleiðni og vatnshæð aftur lækkandi í ánni Skálm Hinseginfáni skorinn niður í Hveragerði Krakkar beri ekki heldur virðingu fyrir eigin úlpum og Airpods Einn var stunginn í Breiðholti Gengur ekki að fólk sé að rústa húsum á Þjóðhátíð Dagskrá Hinsegin daga og bein útsending frá hátíðahöldum „Sjaldan hefur öðru eins stórgrýti verið kastað úr glerhýsi“ Vara við gasmengun við upptök Skálmar og Múlakvíslar Á bak og burt eftir að hafa brotið og bramlað í bústað Ummælin komi á óvart „jafnvel frá Sjálfstæðisflokknum“ Sjá meira